Vinir Öldu buðu 10 milljónir yfir ásett verð í lélegt raðhús: „Við verðum að leyfa nýjum hverfum að rísa“

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, sem býður sig fram í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vill láta reisa ný hverfi þannig að fólk geti eigast raðhús. Alda, eins og hún er yfirleitt kölluð, skrifar á vef Vísis í dag grein þar sem hún fjallar um vinafólk sitt sem vill stækka við sig.

„ Þau eru uppaldir Vesturbæingar en eru nú harðlínu Grafarvogsbúar, eftir að hafa flúið fasteignamarkaðinn í Vesturbænum til efri byggða eftir fæðingu fyrsta barnsins. Þau dreymir um að komast í lítið sætt raðhús með palli og garði fyrir krakkana en Vesturbæjarverðin hafa smitast út í úthverfin.“

Alda segir ekkert grín að stækka við sig.

„Þegar vinafólk mitt sá loks eitt raðhús á sölu í hverfinu sínu slógu þau strax til þótt eignin þyrfti dágott viðhald. Það var hörð samkeppni um eignina svo í örvæntingu sinni buðu þau 10 milljónir yfir ásett verð, en það dugði ekki til; einhver bauð hærra. „Það fáránlegasta við þetta er að það kostar svona 10 milljónir að koma þessu húsi í stand!“ sögðu þau mér.“

Vinafólkið stefnir nú á eign í Mosfellsbæ.

„„Í þéttingunni er bara pláss fyrir sovéska steypuklumpa og lúxus íbúðir. Annað borgar sig ekki að byggja og borgin vill ekki byggja neitt annað“ sagði einn verktaki mér.“

Alda vill snúa frá núverandi þéttingarstefnu: „ú neyðist fólk til að ferðast lengri vegalengdir eftir leikskólaplássi og seinagangurinn og einsleitnin í uppbyggingu húsnæðis hefur ýtt undir húsnæðisskort. Stefnan sem átti að draga úr þörf á einkabílnum hefur reynst verulega árangursrík í að gera hið gagnstæða. Þetta þarf ekki að vera svona. Við verðum að taka þá pólitísku ákvörðun að leyfa borginni að stækka, það er eina vitið. Við verðum að leyfa nýjum hverfum að rísa og nýjum frumbyggjum að spreyta sig.“