„Viltu nú ekki fara að hætta með honum?“

Mikilvæg úttekt hefur verið gerð á stöðu kvenna af erlendum uppruna og barna þeirra sem sækja í kvennaathvarfið í Reykjavík vegna heimilisofbeldis.

Drífa Jónasdóttir, verkefnastýra í Kvennaathvarfinu í Reykjavík er í viðtali í kvöld hjá Lindu Blönda í þættinum 21 á Hringbraut.

Hún segir að það sé ekki gagnlegt að segja konunum hvað þær eigi að gera ef þær búa við ofbeldi eða ef grunur leikur á um slíkt. Heldur er best að að spyrja um líðan og aðstæður og „sá fræjum“ í huga kvennanna um að eitthvað sé ekki eðlilegt. Að þrýsta á konur að fara frá ofbeldismanninum sé ekki til þess að þær fari frá þeim. „Viltu ekki fara að hætta með honum?“ – Sú spurning sé langt í frá gagnleg.

Einnig kemur fram að upplýsingar til kvenna sem mögulega búa við ofbeldi rati ekki til þeirra. Bæklingar á mörgum tunugmálum séu til séu til en þeir rata ekki til kvennanna sem mest þurfa.

Kvennaathvarfið lét vinna tvær skýrslur um annars vegar konur af erlendum uppruna sem koma í athvarfið þar sem skoðuð var staða kvennanna frá mörgum hliðum. En í þessari skoðun kemur fram að erlendar konur sem dvöldu í athvarfinu eru rúmlega tvöfalt líklegri en þær íslensku til að fara aftur heim til gerandans.

Í skýrslunni segir að erlendar konur sem flýðu heimili sín vegna ofbeldis skortir upplýsingar um rétt sinn hér á landi.

Önnur af tveimur skýrslum sem nefnist „Erlendu börnin í athvarfinu: Hvað segir mamma?“, segir þetta: 27 prósent mæðranna vissu ekki hvort tilkynning hafi farið til lögreglu en 93 prósent málanna var tilkynnt til barnaverndar. Auglkjóst er af þessum skýrslum að konur af erlendum uppruna þekkja ekki nógu vel ferlið hjá lögreglunni eða annarra yfirvalda og viti jafnvel ekki af Kvennaathvarfinu.