Þeir sem hafa rennt yfir Facebook í morgun hafa vafalítið tekið eftir myndum af kátum börnum í öskudagsbúningum. Öskudagurinn er gleðidagur í augum barnanna enda gefst þá fágætt tækifæri fyrir þau að mæta í skólann í skemmtilegum búningum.
Vilhelm Anton Jónsson, leikari, tónlistarmaður og barnabókahöfundur, skrifaði áhugaverða hugvekju á Facebook-síðu sína í gærkvöldi.
„Á morgun fyllist Facebook af myndum af börnum í búningum. Það er geggjað. Hluti af Internetinu fer líka í það að vista og viðra skoðanir þeirra sem hata glöð börn eða foreldra þeirra sem birta téðar myndir. Það er sorglegt,“ segir Vilhelm sem er með skýr skilaboð til þeirra sem þurfa að vera í fýlu á þessum mikla gleðidegi barnanna.
„Við þau sem segja að að öskudagurinn, Valentínusar ofl séu ekki íslenskir, vil ég segja þetta: Já það er laukrétt hjá ykkur! Ekki frekar en jólin, páskar eða laugardagur, mánudagur osfrv ef útí það er farið. Ef þið hafið ekkert innihaldsríkara að gera, annað en flexa ykkar kaldhæðni að þið séuð yfir þetta hafin, óska ég ykkur þess að einn daginn megið þið gleðjast. Það er nefnilega geggjað að brjóta upp hversdaginn.“
Vilhelm endaði færsluna sína á þessum orðum: „Lifi: gleðin, litirnir, allskonar og allt hitt. Nema þeir sem draga aðra niður. Megi þeir verða fyrstir á botninn og niður svelginn og út hinum megin.“
Á morgun fyllist Facebook af myndum af börnum í búningum. Það er geggjað. Hluti af internetinu fer líka í það að vista...
Posted by Vilhelm Anton Jonsson on Þriðjudagur, 16. febrúar 2021