Vill loka landamærunum næstu þrjá til fjóra mánuði: „Við höfum tækin til að stoppa þetta. Gerum það!“

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, vill að landamærunum verði lokað næstu þrjá til fjóra mánuði á meðan við erum að klára bólusetningar gegn COVID-19.

Þetta kom fram í máli hans í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær. Benti Guðmundur á að 50-60 smit hefðu greinst á landamærunum undanfarna daga, aðallega breska veiran, og vísbendingar væru um að hún væri búin að skjóta rótum í samfélaginu.

„En það er annað sem er alvarlegra; nú er verið að banka illilega á austurlandamæri landsins, brasilíska veiran er að banka þar á. Og það sem er enn þá alvarlega, ef rétt er, er að maður var sendur um borð án þess að vita af því að smit væri um borð, að tíu af 19 manna áhöfn væru smitaðir. Þessi maður var í tvo eða tvo og hálfan tíma um borð áður en hann fékk að vita það. Brasilíska veiran getur smitað börn, en það sem er enn þá alvarlegra við þessa brasilísku veiru er að hún er talin geta smitað þá sem áður hafa fengið Covid. Ef það er rétt erum við að komin í hálfgerða rússneska rúllettu með veiruna. Við verðum að tryggja það að þessi veira komist ekki inn.“

Guðmundur spurði Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra hvort ekki væri kominn tími til að loka landamærunum næstu þrjá til fjóra mánuði þar til við klárum bólusetningar.

„Ætlum við virkilega að láta alla detta ofan í veirubrunninn? Mér sýnist hæstvirtur heilbrigðisráðherra vera með einhverja plástra sem eru með engu lími. Það á bara einhvern veginn að taka séns. Við höfum tækin í dag til að stoppa þetta. Gerum það!“

Svandís benti Guðmundi á að tvenns konar aðgerðir á landamærunum tækju nú gildi, annars vegar að öll börn verði tekin í sýnatöku og hins vegar að einstaklingar frá svæðum þar sem veiran er hvað skæðust verði skikkaðir í sóttkví í farsóttahúsi.

Guðmundur steig aftur í pontu og ræddi meðal annars litakóðakerfið sem til stendur að taka upp þann 1. maí næstkomandi.

„Ósló er rauð, aðrir staðir í Noregi eru grænir. Þetta gengur ekki upp. Við getum ekki farið eftir svona kerfi. Allra síst vegna þess að þeir sem hafa greinst með veiruna og eru búnir að fá vottorð — það er þegar búið að finna og greina hér innan lands einstakling sem smitar út frá sér þó að hann sé búinn að fá veiruna fyrir löngu og sé með vottorð. Þeir sem hafa smitast af veirunni smita áfram þó að þeir séu með vottorð. Við eigum að sjá til þess að fólk fari í einangrun og við eigum að taka sýni,“ sagði Guðmundur sem benti á að Nýsjálendingar hefðu 14 daga sóttkví.

„Við getum haft það tíu daga, og svo hleypum við engum inn í landið fyrr en eftir það. Það hefur t.d. sýnt sig með súrálsskipið, þegar fjármunir eru undir — ef það er rétt að þeir hafi ekki látið vita þegar þeir komu inn í landhelgina að þeir væru með smit um borð. Við vitum líka að það er fullt af fólki að fara inn í landið og ætlar að vera hér í fjóra daga en á að vera fimm daga í sóttkví, hvernig gengur það upp?“