Vill láta rífa Litla-Hraun: Leggur til nýja lausn

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – Félags fanga, leggur til að Litla-Hraun verði rifið og milljarðarnir sem ríkið hyggst leggja í endurbætur fari í að breyta fangelsinu í opið úrræði.

Í pistli sem Guðmundur Ingi skrifar á Facebook birtir hann mynd af sér árið 2004, þegar hann var búinn að afplána fjögur ár af tólf fyrir innflutning vímuefna og segir að hann hefði farið aðra leið í afplánuninni ef hann hefði afplánað tvö til þrjú ár.

„Frá aldamótum hefur margt breyst en engu að síður er samfélagið enn að dæma fólk til langrar fangelsisvistunar fyrir ofbeldislausa dóma og það er mín bjargfasta skoðun að ef dæma á fólk til þess að dvelja um langt árabil þá verði að gera allt til þess að menntun, starfsþjálfun og styrking fjölskyldubanda sé höfði í fyrirrúmi þannig að dómþolar komi með tól og tæki úr afplánun en ekki eingöngu níðþungan bagga,“ segir hann.

Guðmundur setur stórt spurningamerki við að milljarðar séu settir í endurbætur á Litla-Hrauni og hvað þá að byggja eigi nýtt fangelsi síðar.

„Þau lönd sem við berum okkur saman við (en getum þó ekki þar sem við erum áratugum á eftir þeim) eru með endurhæfingarstefnu, þar eru opin úrræði í forgrunni vegna þess að þau eru framtíðin. Það að loka fólk í litlum klefum til lengri tíma er fortíðarhugsun sem þarf að eyða,“ segir hann.

„Við eigum að læra af grannþjóðum okkar sem hafa sýnt það og sannað að þeir sem fara í gegnum opin úrræði eru ólíklegri til að hljóta að nýju fangelsisdóm, það er bara staðreynd. Það er þess vegna sem fangelsin í Noregi líta út fyrir Bandaríkjamönnum sem sumarbúðir.“

Hann vill frekar rífa Litla-Hraun: „Eftir að hafa rætt við nokkra verktaka sé ég ekki betur en að fýsilegt væri að jafna Litla-Hraun við jörðu og nota þessa milljarða til að reisa þrjú þúsund fermetra opið úrræði, því væri skipt niður í hluta fyrir almenna dómþola annars vegar og geðfatlaða dómþola hins vegar, sem því miður er enn verið að dæma í fangelsi þrátt fyrir að allir viti að þar ættu þeir ekki að vera,“ segir hann. „Í fangelsinu á Hólmsheiði er nefnilega nóg pláss fyrir þá sem taldir eru þurfa dvelja í lokuðu fangelsi.“

Margir hafa tekið undir þennan pistil á samfélagsmiðlum, þar á meðal Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem segir: „Jáh! Takk fyrir baráttuna. Gerum þetta nú eins og fólk!“