Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar vill kalla sendiherra Kína á Íslandi fyrir fund utanríkismálanefndar Alþingis vegna Zhenhua-gagnalekans, en áríðandi sé að fá útskýringar hans á því af hverju kínverskt fyrirtæki, hugsanlega í samvinnu við stjórnvöld í heimalandinu, hafi safnað persónuupplýsingum um fjölda Íslendinga á undanförnum árum.
Þetta kemur fram í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld þar sem Hanna Katrín, sem sjálf er á listanum ásamt 19 ára dóttur sinni, ræðir líklegar skýringar á umræddum gagnagrunni.
Nafnalisti 411 Íslendinga í gögnunum var birtur í Morgunblaðinu í dag, en vísbendingar eru um að gagnabanki kínverska fyrirtækisins Zhenhuga innihaldi upplýsingar um miklu fleiri Íslendinga, mögulega um fjögur þúsund, einkum áhrifafólk úr stjórnmálum síðustu áratuga, dómara, fjölmiðlafólk og fleiri.
Hanna Katrín segir í viðtalinu að hún telji einsýnt að sendiherrann verði kallaður fyrir nefndina, en formaður hennar, Sigríður Á. Andersen sé sömu skoðunar. Eðlilegt sé að leita svara við því hver tilgangur þessara yfirgripsmiklu gagnasöfnunar um Íslendinga er og hvernig gagnabankinn hafi verið notaður og í hverra þágu.