Vill hætta að rukka á næturnar: „Vill borgar­meiri­hlutinn fækka bílum á götum eða ekki?“

Kol­brún Baldurs­dóttir, borgar­full­trúi Flokks fólksins, vill að Reykja­víkur­borg hafi bíla­stæða­hús borgarinnar opin allan sólar­hringinn og gjald­frjáls frá klukkan 22 til 8 á morgnana.

Kol­brún skrifar um þetta í Morgun­blaðið í dag.

Rökin sem Kol­brún kveðst hafa fengið gegn til­lögunni eru þau að þá myndu tekjurnar af rekstri húsanna dragast saman um 5 til 10 milljónir á ári. Í um­sögn vegna af­greiðslu til­lögu Flokks fólksins um að hafa bíla­stæða­húsin opin allan sólar­hringinn segir „að nýting húsanna á þessum tíma sé al­mennt lítil, 10-15% nýting ef lang­tíma­not­endur með mánaðar­kort eru taldir með.“

Kol­brún bendir á að borgin hafi byggt mörg bíla­stæða­hús en nýting þeirra sé ekki góð. „Það er erfitt að skilja þessa rök­semda­færslu í ljósi sla­krar nýtingar bíla­stæða­húsa. Ef notkun bíla­stæða­húsa er eins lítil og raun ber vitni ætti það ekki að valda miklum kostnaði þótt þau (eitt eða fleiri) verði gjald­frjáls á nóttunni. Slík til­högun myndi ef­laust skila sam­fé­laginu meiri á­bata en sá 5-10 m. kr. tekju­missir sem borgin kann að verða af,“ segir hún.

Í dag fór fram um­ræða í borgar­stjórn um bíla­stæða­hús borgarinnar að beiðni Flokks fólksins. Er kallað eftir um­ræðu um að­gerðir til að gera bíla­stæða­húsin að­gengi­legri, ein­faldari, meira að­laðandi og skil­virkari.

Kol­brún bendir á að gjalds í bíla­stæða­húsum sé krafist allan opnunar­tímann en gjald í bíla­stæðum á götum fylgi nokkurn vegin opnunar­tíma verslana. Þá taki bíla­stæða­hús ekki við greiðslum frá snjall­kerfum. Þá bendir hún að að bíla­stæða­hús séu lokuð að nóttu en bíla­stæði á götum alltaf til­tæk.

„Nætur­lokun veldur því að sækja þarf bílinn fyrir kl. 24.00 ella bíða til morguns. Síðast en ekki síst eru mörg bíla­stæða­hús illa lýst og kulda­leg. Sterkar vís­bendingar eru um að fólk sem komið er á og yfir á­kveðinn aldur noti ekki bíla­stæða­hús. Margt eldra fólk segist heldur ekki treysta sér að eiga við miða­kerfi greiðslu­vélanna. Þetta má bæta með ein­földum að­gerðum sem kosta lítið miðað við byggingar­kostnað húsanna.“

Í grein sinni segir Kol­brún einnig að full­trúi Flokks fólksins hafi lagt til að bjóða ó­keypis stæði í t.d. 90 mínútur í bíla­stæða­húsum um helgar. Það myndi hvetja bíla­eig­endur sem ekki aka raf­bílum til að leggja í bíla­stæða­húsi fremur en í götu­stæði.

„Bygging bíla­stæða­húsanna var veru­leg fjár­festing og það er því öfug­snúið að reyna ekki að nýta þau sem best. Fjöl­margar að­gerðir sem í hinu stóra sam­hengi kosta lítið falla á dauf eyru meiri­hlutans vegna þess eins að þær miða að því að bæta hag bif­reiðar­eig­enda. Það er t.d. rök­leysa að halda því fram að bíla­stæða­sjóður muni tapa tekjum þótt boðið sé upp á fá­einar ó­keypis klukku­stundir í bíla­stæða­húsi eða næturopnun. Taka á til­lit til á­bata borgar­búa af auknu að­gengi að bíla­stæða­húsum. Vill borgar­meiri­hlutinn fækka bílum á götum eða ekki?“