Vill fimm daga skyldu á sóttvarnarhóteli strax: Sjálfstæðisflokkurinn með neitunarvald?

Sífellt fleiri kalla eftir því að ákvæði um skyldusóttkvíarhótel verði sett í lög og landamærunum verði lokað betur. Kórónuveiran virðist vera að ná sér á strik hér á landi ef marka má tölur helgarinnar. Í heildina greindust hátt í 40 smit.

„Nú er tíminn til að setja skyldusóttkvíarhótel í lög og "loka" landamærunum betur. Það eru vatnaskilin,“ sagði Hallgrímur Helgason rithöfundur á Facebook-síðu sinni í gær.

Þingmenn Samfylkingarinnar hafa verið nokkuð áberandi á samfélagsmiðlum síðastliðinn sólarhring vegna aðgerða við landamærin. „Sorrý - Sjálfstæðisflokkurinn er með neitunarvald í ríkisstjórninni,“ sagði Helga Vala Helgadóttir við færslu Hallgríms.

Guðmundur Andri Thorsson fjallaði einnig um málið á Facebook-síðu sinni í morgun. Eins og komið hefur fram er holskefla þeirra smita sem greindust um helgina rakin til einstaklings sem virti ekki reglur um sóttkví.

„Einn og einn svindlar á sóttkví. Þannig bara er það og óþarfi að fárast um of yfir því; okkur verður öllum á einhvern tímann. Slíkt brot getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir gjörvallt samfélagið: samkomubann, fjöldatakmarkanir, enn meiri frestun á því að opna almennilega veitingahús og listviðburði. Skyldusóttkví snýst um hóteldvöl í fimm daga og einn og einn telur slíkt úrræði stórkostlegt mannréttindabrot – að gengið sé eftir og litið eftir því að sóttkví sé virt. Ráðandi öfl í ríkisstjórninni fallast á það sjónarmið,“ segir Guðmundur Andri.

Þó nokkrar umræður hafa spunnist undir færslu Guðmundar Andra. Sigursteinn Másson fjölmiðlamaður bendir honum á að þetta snúist um miklu meira en fimm daga á hóteli.

„Hvað hefur komið fyrir Samfylkinguna sem eitt sinn var brjóstvörn fyrir opið land í nánu evrópsku og alþjóðlegu samstarfi?“ Guðmundur Andri svarar Sigursteini með þessum orðum: „Það kom smávegis upp. Covid er það kallað.“

Hann bætir svo við að allt breytist þegar blossar upp veirufaraldur. „Öll samfélög Evrópu – sem við í Samfylkingunni viljum svo sannarlega tengjast nánari böndum með fullri aðild að ESB – eru með strangar reglur og verulega íþyngjandi fyrir borgarana. Mun meira íþyngjandi en að dvelja fimm daga á hóteli.“