Umboðsmaður barna leggur til að Píp-test í grunnskólum verði tekið til skoðunar. Í áliti umboðsmanns segir að í prófinu finna börn fyrir vanlíðan, kvíða og niðurlægingu.
Píp-test fer fram með þeim hætti að nemendur hlaupa fram og til baka í íþróttasal, þar sem tíminn milli lota er stöðugt styttur. Þeir sem ná ekki að hlaupa salinn á tilskyldum tíma verða að setjast niður og fylgjast með þar til einn stendur eftir.
Umboðsmanni barna hefur borist fjöldi ábendinga um dæmi þar sem börn ofreyna á sig í ákafa sínum til þess að standa sig vel og finna börn fyrir mikilli vanlíðan og kvíða fyrir prófinu sjálfu.
Þá felst mikil niðurlæging í því að falla úr prófinu, að sögn umboðsmanns barna.
Hefur bréf verið sent til mennta- og barnamálaráðuneytis þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvort fyrirkomulagið verði tekið til skoðunar og hvort brugðist verði við athugasemdum og sjónarmiðum barnanna.
Bréf umboðsmanns barna má lesa í heild sinni hér.