Vill að RÚV biðjist afsökunar á að hafa gert þennan mann að ósnertanlegri stjörnu

„Ríkisútvarpið þarf að biðjast afsökunar á sínum hlut í að gera þennan mann að ósnertanlegri stjörnu,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, á Facebook-síðu sinni.

Þættir RÚV um barnaskólakennarann Skeggja Ásbjarnarson og meint barnaníð hans hafa vakið athygli undanfarnar vikur, en það var fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. sem kafaði ofan í mál hans.

Sjá einnig: Þorsteinn J kafaði í málið sem enginn hafði rannsakað: Stóra myndin „frekar ískyggileg“

„Ég hlustaði áðan á síðasta þáttinn um Skeggja. Mjög góður þáttur eins og þeir fyrri hafa verið. Hljóðmyndin alveg meistaraleg eins og jafnan hjá Þorsteini J., þeim flinka útvarpsmanni, hann notaði tónlist þessara ára, og síðan rödd Skeggja úr barnatímunum með reglulegu millibili svo að yfir mann hvolfdist þrúgandi menningarandrúmsloft,“ segir Guðmundur Andri meðal annars.

Hann segir að Þorsteinn J. eigi miklar þakkir skildar fyrir þættina en er jafnframt þeirrar skoðunar að RÚV þurfi nú að bregðast við.

„Nú hlýtur eitthvað að gerast. Ríkisútvarpið þarf að biðjast afsökunar á sínum hlut í að gera þennan mann að ósnertanlegri stjörnu (það er svo einkennilegt að ég minnist þess ekki að hafa nokkru sinni hlustað á barnatímann hans, ég held að mér hafi einhvern veginn ekki fundist þátturinn ætlaður mér - og hlustaði ég þó mikið á útvarpið sem krakki).“

Þá segir hann að Laugarnesskóli þurfi að gera hreint fyrir sínum dyrum.

„Skjalasöfnin þarf að opna upp á gátt, það þarf að finna bréfið sem stelpurnar hugrökku skrifuðu skólastjóranum 1966 og önnur gögn sem kunna að leynast einhvers staðar; það þarf að fara fram rannsókn, annað er hreinlega óviðunandi.“