Lilja Alfreðsdóttir menningar-og viðskiptamálaráðherra vill nýta VSK greiðslur frá erlendum streymisveitum líkt og Netflix til að styðja við íslenska fjölmiðla og hefur hugmyndir um að innheimt verði frekari gjöld af veitunum.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Lilja lagði nýverið fram minnisblað á fundi ríkisstjórnar um svokallað menningarframlag erlendra streymisveitna sem innheimt er í mörgum evrópuríkjum.
Segir í Mogganum að Lilja telji rétt að sækja frekari tekjur til erlendra sterymisveitna. Margir Íslendingar greiða fyrir notkun á erlendum streymsiveitum en fyrr á árinu kom fram að 78 prósent Íslendinga væru með áskrift að Netflix.