Vill að Dagur geri tilraun heima hjá sér: „Slepptu því að sópa, ryksyga og skúra og sjáðu hvað gerist“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, mætti óvænt í athugasemdakerfi við frétt RÚV á Facebook í morgun þar sem fjallað var um mengun í Reykjavík að undanförnu.

Í umræddri frétt var bent á að almenningur hefði í vikunni verið beðinn um að draga úr notkun einkabílsins vegna mikillar mengunar. Dagur rakti ástandið til veðurstillu, bíla og nagladekkja og hefur hann talað fyrir því að þeir sem nota nagladekk borgi hluta af slitinu á malbikinu með gjaldtöku.

Bloggarinn Jack Hrafnkell Daníelsson lagði orð í belg á Facebook við frétt RÚV í morgun þar sem hann merkti Dag B. Eggertsson og beindi eftirfarandi skilaboðum til hans:

„Lærðu að þrífa göturnar og hættu þessum fjandans lygaáróðri gegn nagladekkjunum. Þau eru alveg jafn mikið ef ekki meira notuð hér í Svíþjóð og við erum ekki að díla við þetta vandamál hérna.“

Dagur var ekki lengi að svara Jack og þakkaði honum kærlega fyrir að merkja hann í færslunni.

„Svíþjóð er reyndar í 106 sæti yfir loftmengun í heiminum og Ísland er í sæti 107. Sem sagt langt frá því að vera menguðustu lönd í heiminum en rætur mengunar eru þær sömu. Mjög auðvelt að afla sér upplýsinga um þetta á netinu. Bæði fyrir einstök lönd og samanburð. Áhersla á þessi mál hefur sem betur fer stóraukist á undanförnum árum,“ sagði Dagur.

Jack Hrafnkell svaraði að bragði og lagði til að Dagur gerði ákveðna tilraun heima hjá sér í eins og þrjá mánuði.

„Slepptu því að sópa, ryksuga og skúra forstofuna hjá þér og sjáðu hvað gerist. Nákvæmlega það sama er að gerast á götum borgarinnar. Í flestum borgum og bæjum hér í Svíþjóð er hámarkshraði innanbæjar á aðal- og stofnbrautum 40 km sem verður til þess að minnka hættuna á svifryki þegar ekki er hægt vegna veðuraðstæðna að þrífa göturnar.“

Þegar þetta er skrifað hefur Dagur ekki svarað Jack frekar og því alls óvíst hvort hann samþykki áskorun hans.