Vill að borgin kaupi fleiri snjó­ruðnings­tæki

Einar Þor­steins­son for­maður borgar­ráðs segir að vel komi til greina að Reykja­víkur­borg kaupi snjó­ruðnings­tæki sem sinnt geti snjó­mokstri á húsa­götum sam­hliða því að verk­takar sinni snjó­mokstri á stofn­brautum og tengi­vegum.

Morgun­blaðið greinir frá. Mikill snjór er um alla Reykja­víkur­borg og í­búar sumir ekki sáttir við mokstur í sínum götum. Fram hefur komið að Reykja­víkur­borg eigi einungis tvö snjó­ruðnings­tæki á meðan verk­takar sinni rest.

Einar segir í Mogganum í dag að á bilinu 9 til 21 tæki hafi mokað götur og stíga frá því á föstu­dags­kvöld í borginni. Efri byggðir hafi verið í for­gangi.

„En mér finnst vont að sjá fólk enn fast inni í göt­um sín­um á þriðja degi,“ seg­ir Ein­ar,“ hefur Morgun­blaðið eftir Einar. Mikil hálka hefur verið í mið­bænum og var enn nú í morguns­árið á mánu­dags­morgni. Einar segir að menn hafi verið ræstir út strax klukkan 06:00 í morgun til þess að salta.