Kristján Atli Baldursson Dýrfjörð fer ekki fögrum orðum um Björn Steinbekk í pistli sem birtist á Vísi í gærkvöldi, en hann sakar Björn um að hafa ekki endurgreitt sér miða að andvirði 5.2 milljónir króna.
Í gær vakti grein sjálfs Björns athygli, en þar benti hann á að hann hafi verið kallaður ræningi í íþróttahlaðvarpinu Þungavigtin. Björn sagði það ekki rétt, en sagðist þó hafa fengið afsökunarbeiðni frá manninum sem lét orðin falla, en honum fannst umrædd afsökunarbeiðni ekki fullnægjandi. Þá sagðist hann hafa haft samband við styrktaraðila hlaðvarpsins, Nóa Siríus og Coca Cola. Síðarnefnda merkið hafi hætt að styðja hlaðvarpið, en ekki Nói Siríus.
„Núna hefur Coca Cola hætt sem styrktaraðili hjá Þungavigtinni út af ummælum sem hefur verið beðist afsökunar á. Honum þótti ekki nóg að fá afsökunarbeiðni á gegnum netið frá þeim aðila sem kallaði hann „ræningja” heldur krafðist þess að fá afsökunarbeiðni í persónu. Allir þeir sem ég þekki sem keyptu miða af honum hafa ekki fengið slíkt, eða þá neinar betri útskýringar hvað varð um alla þá fjármuni sem voru lagðir inn á félagið Sónar Reykjavík ehf., sem fór síðan í gjaldþrot stuttu síðar.“ skrifar Kristján um málið og snýr sér síðan að miðasölumálinu umdeilda.
„Björn Steinbekk var ekki dæmdur sem ræningi þar sem hann notaði einkahlutafélagið sitt Sónar Reykjavík ehf. til að selja miðana að hans sögn. Hann hefur haft hátt í umræðunni undir það síðasta, og hótað kærum ofl. um þá sem tala um þetta mál. En ekki hafa öll kurl komið til grafar í þessu máli þar sem ekki hefur verið sýnt fram á hvert peningar sem lagðir voru inn á Sónar Reykjavík ehf. fóru.
Það er mjög undarlegt að hann talar sífellt að hann hafi verið svikinn, þó í dómsmálum er það fyrrverandi fyrirtækið hans og konu hans Sónar Reykjavík ehf. sem var undir í málarekstrinum tengdu því máli, en hann persónulega var sýknaður þar sem fólk átti að hafa“ viðskipti” við félagið hans, þó flest öll samskipti hafi farið fram í mínu tilfelli í gegnum facebook, fyrir utan nokkra tölvupósta.“
Þá segir Kristján að einhverstaðar hafi komið fram að 85 prósent miðanna hafi verið endurgreiddir, en hann kannast ekki við það, en hann telur sig hafa keypt meira en fjórðung miðanna og segist ekki hafa fengið krónu til baka.
„Undirskrifaður keypti miða af Framkvæmdastjóra Sónar Reykjavík eða Birni steinbekk að andvirði 5.2 milljónir og bauð 10 flugsæti til Tólfunnar stuðningsmannasveit Íslensku landsliðanna. Björn Steinbekk hefur þó ekki endurgreitt mér eina krónu og hvað þá beðið mig afsökunar í persónu eða útskýrt sitt mál betur. Spurning að hann eyði frekar tíma sínum í að biðja aðra afsökunar en að heimta slíkt frá öðrum og ráðast á þeirra lífsviðurværi.
Ég hef nýtt tækifærið áður að biðja þá alla sem voru í fluginu hjá mér afsökunar og geri ég það hér með aftur.
Tekið skal fram að allir miðar á leikinn sem seldust í gegnum mig (netmidi.is) voru endurgreiddir. 74 Miðar voru seldir af 100, sem aldrei fengust afhentir.“
Þá segir Kristján að í ljósi þess að Björn hafi krafist þess að fyrirtæki myndu hætta að styrkja Þungavigtina, ætli hann að krefjast þess að Toyota, Origo, Skjáskot, Síldarvinnslan, Iceland Air og fleiri hætti að styrkja Björn.
„Að vera svindlari er óheiðarlegt atferli samkvæmt orðabók, hræsnin er algjör, er ekki nóg fyrir hann að fá grein fjarlægða og afsökunarbeiðni, heldur fer fram á að kostendur hlaðvarpa hætti að auglýsa hjá þeim, eftir að hafa fengið afsökunarbeiðni.
Nú hefur Coca Cola á Íslandi slitið samstarfi við hlaðvarp vegna þess að hann krefst þess að fá sína afsökunarbeiðni.
Ég hlýt þá að geta sett fram sömu kröfu á fyrirtæki sem hafa átt í viðskiptum við hann.
Toyota, Origo, Skjáskot, Síldarvinnslan, Iceland Air ofl.“
SJÁ EINNIG: Björn Steinbekk segist hafa verið opinberlega smánaður