Fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar lögðu fram þingsályktunartillögu í dag þar sem óskað eftir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um ESB-aðild fyrir árslok.
„Alþingi ályktar að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla fyrir árslok 2022 um hvort halda skuli áfram aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Eftirfarandi spurning verði borin upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni:
Vilt þú að Ísland taki upp þráðinn í viðræðum við Evrópusambandið með það að markmiði að gera aðildarsamning sem borinn yrði undir þjóðina til samþykktar eða synjunar?“ segir í þingsályktunartillögunni og eru svarmöguleikarnir já eða nei.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var spurð af Loga Einarssyni formanni Samfylkingarinnar um hvort hun studdi þessa tillögu á Alþingi í dag og svaraði hún á þá leið að hún vildi fyrst athuga hvort það væri meirihluti á Alþingi fyrir ESB-aðild áður en farið væri í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„En ég ætla að líka að upplýsa hér alveg heiðarlega að ég er þeirrar skoðunar að Íslandi sé vel borgið þar sem það er. Að við eigum ekki að ráðast í það að fara inn í Evrópusambandið. Það hef ég þá afstöðu, hef ég mótað með mér í töluvert langan tíma vegna þess að ég tel einfaldlega að gallarnir séu miklu fleiri en kostirnir, þótt ég sé fyrsta manneskjan til að viðurkenna það að þetta er ekki-svart hvítt mál,“ sagði Katrín.
Hægt er lesa svör Katrínar við fyrirspurn Loga í heild sinnihér.