Vilja leyfa Vínbúðum að vera opnar á sunnudögum

Hópur Framsóknarmanna á Alþingi hefur lagt fram frumvarp sem myndi heimila Vínbúðunum að hafa opið á sunnudögum auk nokkurra frídaga, sum­ar­dag­inn fyrsta, 1. maí, 17. júní og frídag verslunarmanna.

Haf­dís Hrönn Haf­steins­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, með henni eru þau Ágúst Bjarni Garð­ars­son, Jóhann Frið­rik Frið­riks­son, Lilja Rann­veig Sig­ur­geirs­dótt­ir, Stefán Vagn Stef­áns­son og Þór­ar­inn Ingi Pét­urs­son.

Í grein­ar­gerð segir að bann af þessu tagi við „opn­un­ar­tíma staða sem selja áfengi sam­ræm­ist ekki tíð­ar­anda sam­fé­lags­ins“ og að breyt­ingin stuðli að „frelsi til að veita og sækja þjón­ustu á fram­an­greindum dög­um.“

Þá sé eðli­legt að Vínbúðir hafi rétt til að ákveða opn­un­ar­tíma án þess að það sé skil­yrt í lögum. Þetta er ekki í sama anda og frumvörp Sjálfstæðismanna um frjálsa sölu. Þetta sé „til þess fallið að áfengi verði áfram selt í öruggu umhverfi þar sem eft­ir­lit er með ald­urs­tak­mörkum og stuðlað að for­vörn­um“.