Mikill meirihluti þeirra sem tekið hafa þátt í könnun Fréttablaðsins vilja að sóttvarnaraðgerðir verði hertar að nýju í ljósi nýrra kórónuveirusmita. Könnunin sem um ræðir fer fram á Instagram-síðu Fréttablaðsins og þegar þetta er skrifað hafa um 500 svör borist.
Það er skemmst frá því að segja að 63% eru þeirrar skoðunar að réttast væri að herða sóttvarnarreglur aftur í ljósi nýrra smita en 37% aðspurðra svara spurningunni neitandi. Tekið skal fram að könnunin er til gamans gerð og er ekki nógu vísindaleg til að hægt sé að yfirfæra hana á vilja þjóðarinnar.
Fjögur kórónuveirusmit hafa greinst utan sóttkvíar undanfarna daga og hefur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir varað við því að fleiri smit kunni að greinast á næstu dögum.
„Það myndi ekkert koma mér á óvart. Það gæti gerst því að meðgöngutími svona sýkingar er dálítið langur, um 50 prósent af þeim sem smitast greinast með einkenni á innan viku,“ sagði Þórólfur í viðtali við Fréttablaðið í dag.
Þegar hann var spurður hvort það standi til að herða aðgerðir innanlands í ljósi smitanna sagði hann að það væri i skoðun. Atburðirnir undanfarna daga komi þó til með að móta tillögur hans. Núverandi reglugerð er í gildi til 17. mars og mun Þórólfur skila inn tillögum að breytingum síðar í þessari viku.