Þingmenn úr flokkum Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að ráðherrum verði falið að aðskilja ríki og kirkju, bæði lagalega og fjárhagslega, fyrir árið 2034.
Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar og fyrsti flutningsmaður tillögunnar, segir við Fréttablaðið í dag að Þjóðkirkjan hafi ekki lengur þá yfirburði sem hún hafði á síðustu öld. Ekkert bendi til annars en að meðlimum hennar haldi áfram að fækka eins og raunin hefur verið á síðustu árum. Í því ljósi sé óeðlilegt að kirkjan hafi lagalega og fjárhagslega yfirburði yfir önnur trúfélög.
Jón Steindór segir að sóknargjöld verði innheimt eitthvað áfram að ganga þurfi til samninga til að slíta kirkjujarðasamkomulaginu.
„Þeir samningar þurfa að vera gerðir á forsendum nútímans en ekki þess sem var uppi fyrir hundrað árum,“ segir hann.