Vil­hjálmur vísar í Stein Steinarr: „Ég er Negus Negusi. Búlúlala“

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­réttar­lög­maður líkir atburðarásinni í máli Arn­fríðar Einars­dóttur, sem í dag var skipuð dómari við Lands­rétt, við þekkt kvæði Steins Steinarr.

Mikill styr hefur staðið um málið undan­farin misseri, eða allt síðan Sig­ríður Ander­sen, fyrr­verandi dóms­mála­ráð­herra, skipaði hana sem dómara við Lands­rétt. Málið fór alla leið til Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu sem taldi skipanir dómara við Lands­rétt ó­lög­mætar. Var það Vil­hjálmur sjálfur sem flutti málið gegn ís­lenska ríkinu.

Dóm­nefnd um hæfni um­sækj­enda um em­bætti dómara mat Arn­fríði hæfasta um­sækj­enda nú á dögunum og greindi RÚV frá því í dag að Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir hefði á­kveðið að skipa hana frá næstu mánaða­mótum.

Vil­hjálmur skrifar færslu um málið þar sem hann veltir fyrir sér hvort um ævin­týri eða ís­lenskan veru­leika sé að ræða. Ber færslan yfir­skriftina Búlúlala og er hún laus­lega byggð á sam­nefndu ljóði Steins Steinarr. Gefum Vilhjálmi orðið:

„Árið 2017 skipaði Negus Negusi Abbessiníu­keisari æsku­vin sinn sem dómara við á­frýjunar­dóm­stól landsins. Æsku­vinurinn var með em­bættis­próf í lög­fræði og upp­fyllti al­menn hæfis­skil­yrði. Hann var hins vegar ekki hæfastur í jobbið. Að­spurður um rökin fyrir skipuninni sagði Negusi Negusi: Búlúlala.

Árið 2019 var skipunin dæmd ó­lög­mæt af al­þjóð­legum dóm­stól. Æsku­vinur keisarans hætti því að dæma. Árið 2020 á­kvað keisarinn að skipa sama æsku­vin aftur sem dómara við á­frýjunar­dóm­stólinn með þeim rökum að á þeim tíma sem æsku­vinurinn var ó­lög­lega skipaður sem dómari hefði hann öðlast ó­metan­lega dómara­reynslu og væri því öðrum hæfari í jobbið.

Að­spurður um lög­mæti skipunarinnar sagði Negus Negusi: Ég er Negus Negusi. Búlúlala.“