Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lýsir því yfir á Facebook síðu sinni í dag að hann sækist eftir oddvitasæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir þingkosningar í haust.
Þetta kemur fram í Facebook færslu hjá Vilhjálmi. Þar segir hann mikilvægt að ný kynslóð halli sér völl og taki forystu í þeim verkefnum sem framundan eru. „Ég hef metnað, reynslu og þekkingu til að leiða lista sjálfstæðismanna.“
Páll Magnússon velti sjálfur Ragnheiði Elínu Árnadóttur úr sessi sem oddviti flokksins í aðdraganda síðustu þingkosninga árið 2017. Hann hlaut 45,4 prósent atkvæða.
Sagðist hann eftir kosningar ekki geta stutt ráðherraskipan sem Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, hefði gert tillögu um. Sagði hann í tilkynningu að skipanin, þar sem hann var ekki gerður að ráðherra, hefði verið lítilsvirðing gagnvart Suðurkjördæmi, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði unnið sinn stærsta sigur í kosningunum.
Þá vakti það athygli að Páll studdi ekki framboð Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Var hann þess í stað sagður hafa stutt klofningsframboðið Fyrir Heymaey, sem Íris Róbertsdóttir, núverandi bæjarstjóri leiddi.
Var Páli að lokum vikið úr fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins vegna framgöngu sinnar í aðdraganda kosninganna. Lýsti ráðið yfir fullu vantrausti á þingmanninn og sagðist ekki geta stutt Pál sem þingmann kjördæmisins.
NÝ KYNSLÓÐ TIL FORYSTU Kæru vinir í Suðurkjördæmi, Ég man hvernig mér leið þegar ég náði fyrst kjöri á Alþingi, þá...
Posted by Vilhjálmur Árnason on Saturday, 20 February 2021