Vilhjálmur vill fækka aftur borgarfulltrúum: „Mikið óheillaspor“

Vil­hjálm­ur Þ. Vil­hjálms­son, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 og aftur í 15. Í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir Vilhjálmur að með fjölgun borgarfulltrúa árið 2018 hafi verið stigið mikið óheillaspor.

„Með þess­ari fjölg­un var stigið mikið óheilla­spor. Stjórn­sýsla borg­ar­inn­ar hef­ur versnað stór­lega á þeim rúm­lega þrem­ur árum sem liðin eru af kjör­tíma­bil­inu og var þá ekki úr háum söðli að detta. Fjölga hef­ur þurft ráðum og nefnd­um til að skapa öll­um þess­um borg­ar­full­trú­um eitt­hvað við að vera annað en að sitja í borg­ar­stjórn,“ segir Vilhjálmur hvass.

„Ein­stak­ling­ar og fyr­ir­tæki sem eiga er­indi við borg­ar­yf­ir­völd, nefnd­ir og ráð, finna vel fyr­ir þessu. Alls eng­in rök voru fyr­ir því að fjölga borg­ar­full­trú­um í 23 en þau eru mik­il fyr­ir því að fækka þeim á ný í 15.“

Hann segir að nóg sé um lélega verkstjórn hjá borginni. „Reykja­vík­ur­borg býr yfir mikl­um mannauði sem al­mennt sinn­ir vel viðfangs­efn­um sín­um. Öngþveitið og flækj­u­stig­in í stjórn­sýslu borg­ar­inn­ar auðvelda ekki störf þeirra.“

Þá vitnar hann í texta Ríó Tríó: „Þegar ástandið í borg­ar­stjórn er skoðað í dag dett­ur manni einna helst í hug brot úr texta lags sem þeir góðu fé­lag­ar í Ríó-tríó­inu sungu forðum: „... og skil ei hvað er komið hér af stað, en eitt­hvað hef­ur und­ar­legt skeð.““

Þegar litið sé til bókana og lengd umræðu í borgarstjórn sé engu líkara en fundirnir standi mun lengur yfir en þörf sé á, hljóti það að leggjast þungt á starfsmenn borgarinnar.

„Áður en borg­ar­full­trú­um í Reykja­vík var fjölgað var íbúa­fjöldi á bak við hvern borg­ar­full­trúa í Kaup­manna­höfn svipaður og í Reykja­vík. Á þeim bæ virðist stjórn­sýsl­an ganga ágæt­lega og að því er best er vitað eng­in áform um að fjölga borg­ar­full­trú­um þar,“ segir Vilhjálmur.

„Þessi fjölg­un borg­ar­full­trúa kost­ar borg­ar­sjóð 600-700 millj­ón­ir króna á kjör­tíma­bil­inu, laun og launa­tengd gjöld, aðstöðu- og skrif­stofu­kostnað og ýms­an ann­an kostnað tengd­an störf­um borg­ar­full­trúa. Meðallaun borg­ar­full­trúa eru nú um 15 millj­ón­ir króna á ári. Á kjör­tíma­bil­inu, 48 mánuðum, eru heild­ar­laun átta viðbót­ar­borg­ar­full­trúa því tæp­ar 500 millj­ón­ir króna. Ef til vill finnst meiri­hlut­an­um 600-700 millj­ón­ir króna, launa­kostnaður, skrif­stofuaðstaða o.fl., smáaur­ar miðað við alla þá miklu fjár­muni sem fara í mörg óvönduð vinnu­brögð meiri­hlut­ans við fram­kvæmd ým­issa viðfangs­efna.“