„Hérna sést algjörlega hvers vegna það er bráðnauðsynlegt að banna verðtryggð húsnæðislán til einstaklinga og heimila,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og fyrrverandi varaforseti ASÍ.
Vilhjálmur gerir frétt Morgunblaðsins í dag að umtalsefni en þar kemur fram að greiðslur af óverðtryggðum lánum gætu hækkað verulega ef stýrivextir Seðlabankans hækka aftur. Samkvæmt útreikningum sem Morgunblaðið lét framkvæma gætu greiðslur af meðalhúsnæðisláni hækkað um allt að 50%.
Vilhjálmur hefur lengi kallað eftir því að verðtryggingin verði hreinlega bönnuð.
Smalað eins og lömbum til slátrunar
„Ástæðan er einföld, en hún er sú að þegar Seðlabankinn og fjármálakerfið vill koma aftur vaxtaokrinu á þá verður öllum þeim þúsundum heimila sem hafa náð að endurfjármagna sig á hóflegum óverðtryggðum vöxtum smalað eins og lömbum til slátrunar aftur inn í verðtryggða lánaumhverfið,“ segir Vilhjálmur.
Í Morgunblaðinu er tekið dæmi af einstaklingi sem kaupir 35 milljóna króna eign. Hann tekur grunnlán fyrir 70 prósentum af kaupverði til 40 ára á 3,5% breytilegum óverðtryggðum vöxtum og 15 prósenta viðbótarlán á 4,5 prósenta breytilegum vöxtum.
Ef vextir hækka um 3,5 prósentustig, í 7,0 prósent, gæti greiðslubyrðin hækkað úr 144 þúsund krónum á mánuði í 216 þúsund krónur.
„Ef þessi verðtryggðu lán verða bönnuð þá verða takmörk fyrir því hversu mikið hægt er að hækka óverðtryggða vexti,“ segir Vilhjálmur í færslu sinni og bendir á að greiðslugeta almennings og heimila sé takmörkunum háð.
„En ef verðtryggðum lánaformum verður enn leyft að viðgangast í íslensku samfélagi þá verða heimili sem eru með óverðtryggð lán, skikkuð til að endurfjármagna sig með verðtryggðum lánum til að þau geti viðhaldið greiðslugetu sinni áfram.“
Varar sterklega við
Vilhjálmur segir að það blasi við að þetta muni gerast ef vextir fara aftur upp. „Ætlar einhver að halda því t.d. fram að Seðlabankinn hefði hækkað stýrivextina í 18% í hruninu ef öll húsnæðislán hefðu verið óverðtryggð? Nei að sjálfsögðu ekki, enda hefði það þýtt að mánaðarlegar afborganir af meðalhúsnæðisláni hefðu farið í allt að 500 þúsund á mánuði.“
Vilhjálmur segir að nú liggi fyrir að verðbólga sé aftur komin af stað. Máli sínu til stuðnings bendir hann á að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,46% í síðasta mánuði. Það þýðir að verðtryggðar skuldir heimilanna í landinu, sem í heildina nema um 1800 milljörðum, hækkuðu á einum mánuði um 82 milljarða.
„Mitt mat er einfalt það á og verður að banna alfarið verðtryggð lán til heimila og einstaklinga til að fyrirbyggja að þeim þúsundum heimila sem hefur loksins tekist að brjótast út úr glæpalánaforminu sem verðtryggðu lánin eru, verði ekki smalað inn í það glæpalánaform að nýju til þess eins að viðhalda greiðslugetu heimilanna til að fóðra okurvexti að nýju!“