Vilhjálmur svekktur: „Engar aðgerðir næstu 4 ár við hættulegustu gatnamót borgarinnar“

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, gagnrýnir borgarstjórn og samgönguráðherra harðlega fyrir að fresta fyrirhuguðum framkvæmdum við mislæg gatnamót á Reykjanesbraut við Bústaðaveg til ársins 2025.

Sáttmáli um að framkvæmdir myndu hefjast á þessu ári var undirritaður af samgönguráðherra, fjármálaráðherra og borgarstjóra árið 2019.

„Engar aðgerðir næstu fjögur ár við þessi hættulegustu gatnamót borgarinnar,“ segir Vilhjálmur í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag um málið. Hann segir að hvorki samgönguráðherra né borgarstjóri hafi útskýrt opinberlega hvers vegna þessi ákvörðun var tekin.

„Í yfirlýsingu sinni minntist ráðherra ekki einu orði á borgarlínu og þá tugi milljarða króna sem á að eyða í þá framkvæmd á næstu mánuðum og árum. Þar er verið að leggja í vegferð upp á 100- 120 milljarða króna, sem aðallega Reykjavíkurborg og nokkur önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, ríkissjóður og bíleigendur bera kostnað af. Það ævintýri virðist eiga að halda áfram athugasemdalaust.“

Vilhjálmur, sem var borgarstjóri frá 2006 til 2007 og oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn frá 2003 til 2008, gagnrýnir borgaryfirvöld og segir að aðgerðarleysi þeirra, þegar kemur að mikilvægum samgöngubótum í Reykjavík, hafa staðið yfir meira og minna í áratug.

„Kostnaður við borgarlínu hefur forgang en aðrar mikilvægar og afar hagkvæmar samgöngubætur eru látnar mæta afgangi hjá núverandi meirihluta í borgarstjórn.“

Vilhjálmur segir að meirihlutinn í Reykjavík hafi haft nægan tíma til að gera nauðsynlegar ráðstafanir í skipulagi mislægra gatnamóta á Reykjanesbraut við Bústaðaveg til að framkvæmdir gætu hafist á þessu ári.

„Meirihlutinn í Reykjavík aðhafðist ekkert í þeim efnum, enda enginn vilji til þess hjá honum þótt borgarstjóri hafi undirritað samkomulag við ríkið um að það yrði gert á árinu 2021.“

Vilhjálmur segir að ákvörðun samgönguráðherra sé greinilega afleiðing af vinnubrögðum meirihlutans í Reykjavík í samgöngumálum borgarinnar. Hagsmunir og öryggi rúmlega 100 þúsund bíleigenda í Reykjavík séu síður en svo hafðar í huga.

„Kostnaður við umferðartafir er metinn á yfir 20 milljarða á ári. Einnig er augljóst að með því að taka akreinar af almennri umferð og leggja þær undir borgarlínuna er verið að auka umferðartafir. Miðað við óbreytta stefnu er ljóst að kostnaður vegna umferðartafa á höfuðborgarsvæðinu mun nema mörgum tugum milljarða eftir 10- 20 ár. Áherslur meirihlutans liggja fyrst og fremst í því að gera einkabílnum eins erfitt fyrir og kostur er, loka að verulegu leyti fyrir umferð einkabíla í miðborg Reykjavíkur, þétta byggð óhóflega í miðborginni og nærliggjandi hverfum og tefja lagningu Sundabrautar og gerð mislægra gatnamóta á Reykjanesbraut við Bústaðaveg,“ segir Vilhjálmur sem endar grein sína á þessum orðum:

„Umferðarmál borgarinnar eru í ólestri en á sama tíma er meirihlutinn í borgarstjórn mjög upptekinn m.a. við að finna leiðir til að leggja Reykjavíkurflugvöll niður, koma í veg fyrir byggingu mislægra gatnamóta, byggja flugvöll í Hvassahrauni og ráðstafa tugum milljarða króna í borgarlínu á næstu árum.“