„Ég ítreka enn og aftur að nú verða stjórnvöld að setja þak á neysluvísitölu verðtryggðra húsnæðislána áður, en það verður of seint,“ segir Vilhjálmur Birgisson, varaforseti ASÍ og formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur hefur kallað eftir því að stjórnvöld frysti vísitölu neysluverðs vegna þeirrar óvissu sem nú er uppi í efnahagsmálum vegna COVID-19. Vilhjálmur og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í síðustu viku þar sem þeir kölluðu eftir því að yfirvöld kæmu til móts við þau heimili sem eru með verðtryggð húsnæðislán.
Gengi krónunnar hefur veikst talsvert að undanförnu gagnvart helstu gjaldmiðlum; Bandaríkjadollar er kominn í 141 krónu, evran í 155 krónur og pundið í 170 krónur.
Í viðtali við Hringbraut í síðustu viku kvaðst Vilhjálmur hafa áhyggjur af þessari þróun sem gæti leitt til verðbólguskots. Vilhjálmur sagði að fordæmi væru fyrir því að verðbólguskot hafi komið hér á landi í kjölfar falls krónunnar. „Við höfum fordæmi fyrir því úr hruninu þar sem að lánin stökkbreyttust eftir að gengið féll.“
Vilhjálmur ítrekaði þetta í færslu sem hann skrifaði á Facebook í morgun.
„Ég minni á að 1% verðbólguskot á einum mánuði kostar íslensk heimili 20 milljarða og ég bara trúi ekki að stjórnvöld ætli að endurtaka stærstu hagstjórnarmistök Íslandssögunnar frá árinu 2008 með því að hunsa að taka neysluvísitöluna tímabundið úr sambandi.“
Vilhjálmur segir að ábyrgð stjórnvalda og alþingismanna í þessu máli sé mikil.
„En ekkert heyrist frá þeim og spurning hvort enn og aftur eigi að fórna íslenskum heimilum á blóðugu altari verðtryggingarinnar!“