Vilhjálmur sótillur út í N1: Öllu siðferði sturtað niður í holræsið

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er allt annað en sáttur við N1. Fyrirtækið hefur verið sakað um blekkingar og skrifaði Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, til dæmis grein á Vísi í gær þar sem farið var hörðum orðum um N1 rafmagn.

Vilhjálmur skrifar einnig grein sem birtist á vef Vísis í morgun en þar bendir hann á að Orkustofnun sé með til skoðunar kvartanir vegna meintra blekkinga N1. Regluverkið á Íslandi er þannig að Orkustofnun velur á sex mánaða fresti fyrirtæki til þrautavara ef neytendur velja sér ekki sjálfir raforkusala til að eiga í viðskiptum við. Það fyrirtæki hefur alltaf verið N1 rafmagn sem hét áður Íslensk orkumiðlun eins og fram kom í frétt Vísis í gær.

Í fréttinni var bent á að um þúsund aðilar lendi hjá N1 í hverjum mánuði vegna þessarar þrautavararleiðar en um 300-400 velja sér sjálfir fyrirtæki. Þeir sem velja ekki sjálfir þurfa að borga mun hærra verð hjá N1 en aðrir sem velja sér fyrirtækið.

Vilhjálmur segir að þarna hafi verið afhjúpað, enn eina ferðina, hvernig neytendur á Íslandi eru svívirðilega blekktir, allt til þess eins að fullnægja „arðsemisgræðginni“ sem skekur fjölmörg stór fyrirtæki á Íslandi.

„Í þessu tilfelli er um að ræða fyrirtækið N1 sem er í eigu Festi, en N1 er sakað réttilega um ógeðfelldar blekkingar þar sem fyrirtækið hefur selt viðskipta“vinum“ rafmagn í gegnum svokallaða þrautavaraleið á 73% hærra verði en því sem auglýst er.“

Hann segir að grandalausir neytendur sem eru að flytja sig á milli heimila átta sig ekki á þeim blekkingum sem N1 hefur tekist að ástunda vegna glufu í regluverkinu.

„Í gegnum þessa glufu hefur N1 tekist að soga til sín um þúsund „viðskiptavini“ í hverjum mánuði á grundvelli þess að þeir séu með lægsta verðið þegar raunin er sú að þeir eru með hæsta verðið, ef neytandinn skráir sig ekki formlega í viðskipti hjá þeim.“

Vilhjálmur er eðli málsins samkvæmt óánægður með þessa viðskiptahætti og bendir á að N1 tilheyrir Festi sem á og rekur Krónuna, Elko og N1. Meirihlutaeigendur félagsins séu lífeyrissjóðir launafólks sem eiga unpp undir 70% í Festi.

„Hugsið ykkur að það eru lífeyrissjóðir launafólks sem eiga um 70% í N1 sem sakað er réttilega um að blekkja neytendur með svívirðilegum hætti. Og því spyr maður sig eðlilega: Hvað ætla stjórnendur lífeyrissjóða launamanna að gera með þessar ásakanir sem hafa kostað þá sem hafa lent í þessu blekkingarneti um 10% af launahækkun sem kom til framkvæmda í fyrra?“

Vilhjálmur hvetur stjórnendur lífeyrissjóðanna til að bregðast við því þarna sé verið að arðræna neytendur og launafólk með blekkingum.

„Það er algerlega mitt mat að stjórnendur lífeyrissjóðanna og sérstaklega fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar geta ekki og mega ekki láta þessar blekkingar átölulausar og því verða þeir að knýja í gegn að þeir sem bera ábyrgð á þessum blekkingum víki ella komi lífeyrissjóðirnir sér í burtu frá fyrirtæki sem hefur sturtað öllu siðferði gagnvart neytendum í holræsið.“