Vilhjálmur: Sjáðu hvað 50 milljóna lánið hefur hækkað mikið á 12 mánuðum

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að það hafi löngum verið vitað að fjármálakerfinu hugnast ekki að fólk sé að taka óverðtryggð húsnæðislán.

Bankarnir vilji frekar að fólk taki verðtryggð lán enda þá sé öll áhættan sett á herðar lántakans.

„Munum líka að almenningur hefur ekkert val, hann er þvingaður inn í þetta lánaform. Verðtryggð lán eru glæpalán sem gera ekkert annað en að hækka og það fyrstu 25 árin frá því þau eru tekin og því ber stjórnvöldum að verja þegna sína með því að banna þetta lánaform. Munum að hvergi í siðmenntuðum löndum dettur mönnum til hugar að leggja slíkar byrðar á fólk sem er að taka húsnæðislán,“ segir Vilhjálmur á Facebook-síðu sinni.

Hann nefnir dæmi af fjölskyldu sem tók 50 milljóna króna verðtryggt húsnæðislán fyrir ári síðan. Þessi sama fjölskylda hefur mátt þola að höfuðstóll lánsins hafi hækkað um tæpar 5 milljónir króna á 12 mánuðum, eða sem nemur tæpum 400 þúsundum í hverjum mánuði.

„Munum líka að stýrivaxtatæki Seðlabankans virkar afar illa á verðtryggð lán, þetta vita allir sem vita vilja en þrátt fyrir það hafa fjármálastofnanir heimild til að lána almenningi með þessum hætti.“