Vilhjálmur: Sennilega engar þjóðir eins vitskertar og við Íslendingar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og formaður Starfsgreinasambandsins, segir ekki annað að sjá en að verðbólgan hér á landi sé að verða stjórnlaus.

Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar mælist verðbólgan nú 7,2% og hefur hún ekki verið hærri frá árinu 2010. Í færslu á Facebook-síðu sinni bendir Vilhjálmur á að almenningur beri ekki ábyrgð á þessari hækkun að neinu leyti heldur sé um að ræða afleiðingar af stríðinu í Úkraínu og afleiðingar Covid-faraldursins. Hann sendir íslenskum yfirvöldum svo væna sneið.

„Mér er það algerlega til efs að hækkun á verðbólgunni hitti neina þjóð eins illa eins og okkur Íslendinga enda eru engar þjóðir svo vitskertar að tengja fjárskuldbindingar heimilanna við hækkun á vísitölunni eins og hér á landi.“

Vilhjálmur bendir á að þetta muni hitta heimili sem enn eru föst í hlekkjum verðtryggingar afar illa. Verðtryggðar skuldir íslenskra heimila nema í dag um 1500 milljörðum og segir Vilhjálmur að á síðustu 12 mánuðum hafi þær hækkað um 108 milljarða. Og bara í síðasta mánuði hækkuðu verðtryggðar skuldir heimilanna um tæpa 20 milljarða.

„Hugsið ykkar að heimili sem er með 35 milljóna verðtryggt húsnæðislán fær hækkun á sínu láni á einum mánuði sem nemur um 438 þúsund krónum. Þetta er svo galið að það nær ekki nokkurri átt og enn og aftur sitja stjórnvöld aðgerðalaus hjá og gera ekki neitt til að verja heimilin.“

Vilhjálmur segir að þetta komi ekki bara illa við lántakendur húsnæðislána því þetta skili sér einnig á leigumarkaðinn. Fjölmargir leigjendur séu fastir með leigusamninga sem tengdir eru við verðbólguna.

„Leigjandi sem leigir á 250 þúsund á mánuði hefur fengið hækkun sem nemur 18.000 kr. á síðustu 12 mánuðum og bara í síðasta mánuði hækkaði leigan vegna hækkunar á vísitölunni um tæpar 3000 krónur,“ segir Vilhjálmur og segir að nú sé nóg komið.

„Ég vil spyrja hvað ætla stjórnvöld að gera? Mitt svar er að ég held að þau muni ekkert gera frekar en vanalega og það er ljóst að komandi kjarasamningar munu verða erfiðir enda verður það ekki látið átölulaust að öllum ábyrgðum verði varpað á herðar launafólks, almennings og heimila.“