Vilhjálmur sendir pillu: Þarf góða kosningu svo niðurstaða prófkjörsins verði virt

Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðistæðisflokksins og frambjóðandi í prófkjöri flokksins í Kraganum fyrir komandi kosningar, skýtur á flokkinn í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Segist hann þurfa á góðri kosningu að halda í prófkjörinu því það virðist regla fremur en undantekning að hliðra honum til á lista flokksins.

„Ég hef tvisvar áður tekið þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Hið fyrra sinni árið 2012 fyrir kosningar 2013 fékk ég næstflest atkvæði í prófkjörinu og næstflest atkvæði í fyrsta sæti. Niðurstaðan varð 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Í hinu síðara sinni kom framboð sem beinlínis var stefnt gegn mér, en niðurstaðan varð aftur fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Eftir að úrslit lágu fyrir í prófkjörinu 2016 var stefnt að því leynt og ljóst að ég skyldi færður niður um sæti. Sú varð niðurstaðan; ég var færður úr fjórða sæti í fimmta! Og ég hélt friðinn! Án þess að fá aukatekið takk fyrir! Þeir sem á undan mér voru töldu þessa færslu tæra snilld, enda var hún ekki á þeirra kostnað.“

Fimmta sætið dugði til þingmennsku árið 2016 en ekki árið 2017 en nú, fjórum árum síðar, er Vilhjálmur kominn aftur og stefnir hann á þing.

„Hvert skal stefnt? Eins ofarlega og kostur er, því það virðist regla fremur en undantekning að skáka mér til á listanum. Þriðja sæti eða hærra!,“ segir Vilhjálmur sem bendir á að hann sé á góðum aldri, til dæmis yngri en Bretadrottning og breski ríkisarfinn og yngri en Bandaríkjaforseti.

Vilhjálmur bendir á að hann sé stoltur af þingferli sínum, ekki vegna fjölda mála sem hann lagði fram heldur þeim þingmálum sem hann greiddi götu.

„Ber þar hæst upplausn þrotabúa hinna föllnu banka og afnám gjaldeyrishafta. Ég hélt mig til hlés með að halda veislu að loknum þeim sigri. Mín efsta hugsun er sú að löggjöf eigi ekki að mismuna fólki. Það ber nokkuð við að þingmenn og ríkisstjórn leggi fram þingmál til mismununar. Stjórnmál snúast um að skapa fólki og fyrirtækjum jöfn tækifæri,“ segir hann meðal annars og ítrekar að hann þurfi góða kosningu til að niðurstaða prófkjörsins verði virt.

„Ég þarf kosningu í þriðja sæti eða ofar!“