Vil­hjálmur segir þetta ekki standast skoðun: „Er þessum mann­skap treystandi?“

Hæsta­réttar­lög­maður Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son skrifar um faðir ríkis­lög­reglu­stjóra í grein á Vísir.is í morgun og deilir þar með hlekkjum á fréttir um að hann hafi selt ó­lög­lega riffla.

„Nú hefur komið í ljós að ríkis­lög­reglu­stjóri, sem þá var lög­reglu­stjórinn á höfuð­borgar­svæðinu, fékk upp­lýsingar um það 10. júlí 2018, að maður sem gaf skýrslu hjá lög­reglu vegna vopna­laga­brots, hafi greint frá því að hann hafi keypt vopnið af föður ríkis­lög­reglu­stjóra, sem selur vopn á netinu (www.vopna­salinn.net),“ skrifar Vil­hjálmur.

„Í skýrslu­tökunni var jafn­framt upp­lýst að faðir ríkis­lög­reglu­stjóra hefði selt marga slíka riffla og þeir kostuðu um 1.500.000,- (dómur Lands­réttar í máli nr. 607/2019, upp­kveðinn 29. janúar 2021). Við flutning málsins í héraði, 13. júní 2019, var upp­lýst að faðir ríkis­lög­reglu­stjóra hefði selt öðrum sams konar vopn og á­kærða. Þrátt fyrir það sá lög­reglan ekki á­stæðu til þess að hefja rann­sókn á meintri ó­lög­mætri vopna­sölu föður ríkis­lög­reglu­stjóra.

„Sam­kvæmt lögum um með­ferð saka­mála skal lög­regla hve­nær sem þess er þörf hefja rann­sókn út af vit­neskju eða grun um að refsi­vert brot hafi verið framið hvort sem henni hefur borist kæra eða ekki. Ríkis­lög­reglu­stjóri hafði upp­lýsingar um það sumarið 2018 að grunur léki á að faðir hennar væri að selja ó­lög­leg vopn, sjálf­virka eða hálf­sjálf­virka riffla, sem í raun eru ekkert annað en hríð­skota­byssur. Þær upp­lýsingar voru síðan stað­festar í héraðs­dómi 13. júní 2019.“

„Af framan­sögðu er ljóst að ríkis­lög­reglu­stjóri virðist hafa látið sér í léttu rúmi liggja að rök­studdur grunur væri uppi um að faðir hennar væri að selja hríð­skota­byssur á Ís­landi. Við hús­leit lög­reglu í ,,stóra hryðju­verka­málinu” fjórum árum síðar fundust meðal annars sams­konar vopn og fjallað var um í dómi Lands­réttar nr. 607/2019,“ skrifar Vil­hjálmur.

„Það er ætlun lög­reglu, hvort sem að það stenst skoðun eða ekki, að þessi vopn hafi meðal annars átt að nota til þess að gera hryðju­verka­á­rás á lög­regluna. Það er á­kveðin kald­hæðni fólgin í því að ríkis­lög­reglu­stjóri og em­bætti lög­reglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu bjuggu yfir upp­lýsingum um þessa vopna­sölu í fjögur ár án þess að að­hafast neitt.“

„Með því er stað­fest að dóm­greindar- og getu­leysi lög­reglu til þess rann­saka saka­mál á grund­velli upp­lýsinga sem eru beint fyrir framan nefið á henni er al­gjört. Á sama tíma er lög­reglan með há­værar kröfur um fá að njósna eftir­lits­laust um borgarana á grund­velli svo­kallaðra for­virkra rann­sóknar­heimilda.

Er þessum mann­skap treystandi til þess? Svarið er nei,“ skrifar Vil­hjálmur.