Vil­hjálmur segir sumar aðgerðir „mjög ó­­nauð­­syn­­legar“ og kallar eftir rökstuðningi

Vil­hjálmur Árna­son þing­­maður Sjálf­­stæðis­­flokks og for­­maður um­­hverfis- og sam­­göngu­­nefndar vill meira gagn­sæi um á­kvarðanir heil­brigðis­ráð­herra um að­gerðir vegna far­aldurs Co­vid-19. Hann segir sumar að­gerðirnar orka tví­mælis.

„Það er mikið af að­­gerðunum sem maður upp­­lifir mjög harðar eða mjög ó­­nauð­­syn­­legar. Sumar þeirra finnst okkur kannski mynda vissa sóun eða stangast á hvor við aðra. Það er verið að tala um að vernda líf og heilsu en ef við sköpum þannig and­­legar og fé­lags­­legar að­­stæður, þá getur líf og heilsa líka verið í hættu,“ sagði Vil­hjálmur í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Hann vill að yfir­völd veiti rök­stuðning fyrir að­gerðunum svo al­menningur átti sig betur á því hvers vegna gripið er til þeirra.

„Ég held að það sé betra að fá fólk með sér í að fylgja að­­­gerðunum og skilja þær ef það er upp­­­­­lýst um rökin og það sé upp­­­­­lýst um það að það hafi fleiri sjónar­horn verið metin en bara hreinar sótt­varnir,“ sagði þing­­­maðurinn.