Vilhjálmur segir stjórnleysi ríkja: Einungis 4 borgarfulltrúar af 19 búa í austurhluta Reykjavíkur

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, segir að stjórnleysi ríki í borginni. Vilhjálmur stingur niður penna í Morgunblaðinu í dag þar sem hann gagnrýnir meirihlutann harðlega.

„Á und­an­förn­um árum hafa borg­ar­yf­ir­völd lagt nán­ast alla áherslu á upp­bygg­ingu í vest­ur­hluta Reykja­vík­ur. Skipu­lags­stefna borg­ar­inn­ar end­ur­spegl­ast á því svæði í þétt­setn­um há­hýs­um og flest bend­ir til þess að háhýsastefnu borg­ar­yf­ir­valda verði viðhaldið næstu árin. Nefna mætti mörg dæmi um bygg­ingu há­hýsa víðs veg­ar í vest­ur­hluta borg­ar­inn­ar og fyr­ir­hugaða bygg­ingu slíkra húsa, meðal ann­ars þar sem nú er bens­ínsala við mót Nes­veg­ar og Ægisíðu. Heim­ilt verður að byggja þar fimm hæða fjöl­býl­is­hús á lóðinni með 50 íbúðum. Ekk­ert til­lit hef­ur verið tekið til mót­mæla íbúa á svæðinu,“ segir Vilhjálmur.

Hann gagnrýnir það að nánast engar lóðir undir sér­býli hafi verið til út­hlut­un­ar í Reykja­vík síðustu átta árin. Þúsund­ir Reyk­vík­inga hafi flutt í önn­ur sveit­ar­fé­lög en sem bet­ur fer hafa hverf­in í aust­ur­hluta borg­ar­inn­ar að mestu verið lát­in í friði. Á næst­unni standi þó til að byggja nokk­ur há­hýsi í Mjódd­inni vest­an Bakka­hverf­is.

„Áhersl­ur meiri­hlut­ans í borg­ar­stjórn hafa fyrst og fremst beinst að upp­bygg­ingu á miðborg­ar­svæðinu og í nær­liggj­andi hverf­um. Það kann hugs­an­lega að end­ur­spegl­ast í þeirri staðreynd að ein­ung­is fjór­ir borg­ar­full­trú­ar eiga heim­ili í aust­ur­hluta borg­ar­inn­ar en 19 borg­ar­full­trú­ar í vest­ur­hluta henn­ar. Nokkr­ir borg­ar­full­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins hafa þó með áber­andi hætti sinnt mál­efn­um aust­ur­hverfa borg­ar­inn­ar.“

Vilhjálmur segir að fjármálastjórn borgarinnar hafi verið á brauðfótum undanfarin ár og eyðslustefna allsráðandi. Þá hafi tugir milljóna króna verið settir í margs konar gæluverkefni meirihlutans sem engu skila.

„Skuld­ir aukast stöðugt og A-hluti borg­ar­sjóðs er rek­inn með halla ár eft­ir ár. Öllum er ljóst, nema borg­ar­full­trú­um meiri­hlut­ans, að það stefn­ir í enn al­var­legri fjár­hagserfiðleika borg­ar­sjóðs á þessu ári og þeim næstu. Það er ef til vill hægt að halda áfram með þess­um hætti um stund­ar­sak­ir en ekki til langs tíma. Enda­laus skulda­aukn­ing og óstjórn fjár­mála hef­ur sín­ar al­var­legu af­leiðing­ar fyrr en síðar. Borg­ar­full­trú­ar meiri­hlut­ans ættu að kynna sér siðaregl­ur borg­ar­full­trúa en þar seg­ir í 7. lið: „Við för­um vel með fjár­muni borg­ar­inn­ar og eign­ir henn­ar.“

Vilhjálmur segir í grein sinni að núverandi tillögur um lagningu borgarlínu muni aldrei ganga upp.

„Fjár­mögn­un í þessa glóru­lausu fram­kvæmd er með þeim hætti að hlut­ur rík­is var áætlaður á verðlagi 2019 um 43 millj­arðar króna en hlut­ur Reykja­vík­ur­borg­ar um fjór­ir millj­arðar króna. Ljóst er að þess­ar töl­ur hafa hækkað tölu­vert síðustu árin. Stefnt er að því að fjár­magna borg­ar­línu­fram­kvæmd­ir að hluta með veggjöldum en óljóst er hvernig því verður hagað. Nú er unnið með mjög dýra út­færslu borg­ar­línu, sem marg­ar borg­ir stefndu upp­haf­lega að en völdu á end­an­um veru­lega ódýr­ari út­færslu. Hvorki borg­ar­sjóður né rík­is­sjóður hafa efni á því að sólunda tug­um millj­arða króna í þessa fram­kvæmd. Ábyrgð þeirra sem sýsla með al­manna­fé er mik­il og því verður vart trúað að rík­is­stjórn­in átti sig ekki á þeirri staðreynd. Meiri­hluti borg­ar­stjórn­ar ger­ir það ekki.“