Vil­hjálmur segir Seðla­bankann hóta launa­fólki: „Sorg­legt að sjá og verða vitni að“

„Enn og aftur kemur Seðla­bankinn og hótar launa­fólki illi­lega vegna komandi kjara­samninga en rétt er að geta þess að einungis 12 vikur eru þar til kjara­samningar á hinum al­menna vinnu­markaði renna út, skrifar Vil­hjálmur Birgis­son for­maður Starfs­greina­sam­bandsins og Verka­lýðs­fé­lags Akra­nessá Vísi.

„Það er svo sorg­legt að sjá og verða vitni að varð­mennskunni enn og aftur í kringum fjár­málaelítuna og Seðla­bankann er vílar ekki fyrir sér að kasta launa­fólki, al­menningi og heimilunum eins og hverju öðru fóðri í ginið á fjár­mála­hýenunum með því að hækka vexti við­stöðu­laust.

Það er rétt að rifja upp að í síðustu kjara­samningum gerði verka­lýðs­hreyfingin allt til að stuðla hér að stöðug­leika sem byggðist á lágri verð­bólgu og hag­stæðu vaxta­um­hverfi. Við sömdum um krónu­tölu­hækkanir sem námu 90 þúsund krónum í fjögurra ára samningi handa þeim tekju­lægstu og 67.500 krónum handa þeim sem ekki tækju laun eftir kaup­töxtum,“ heldur Vil­hjálmur á­fram.

„Já, við gerðum allt rétt í kjara­samnings­gerðinni 2019 og allir voru sam­mála um að lífs­kjara­samningurinn myndi tryggja stöðug­leika næstu fjögur árin, en að sjálf­sögðu sá enginn fyrir Co­vid­far­aldur né stríð í Úkraníu. En núna á enn og aftur að skella allri á­byrgðinni á launa­fólk og heimili.“

Vil­hjálmur segir ljóst að lífs­kjara­samningurinn sem gerður var 2019 stuðlaði að vaxta­lækkunar­ferli og í nokkra mánuði var ís­lenskum al­menningi og heimilum boðið upp á nokkuð sam­bæri­leg vaxta­kjör á hús­næðis­lánum og neyt­endum í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við stendur til boða.

„En Adam var ekki lengi í para­dís, enda hafa stýri­vextir Seðla­bankans hækkað úr 0,75% í 4,75% á skömmum tíma og allur á­vinningurinn sem náðist er fokinn út í veður og vind.

Það er dapurt að sjá Seðla­bankann hækka vexti vegna hluta sem launa­fólk og heimili bera enga á­byrgð á enda liggur fyrir að verð­bólgan hér á landi er vegna fram­boðs­skorts á hús­næði og vegna inn­fluttrar verð­bólgu sem við ráðum ekkert við.

Það blasir við að vaxta­hækkanir Seðla­bankans gera ekkert annað en að fóðra hýenur fjár­málaelítunnar eins og enginn sé morgun­dagurinn enda nam t.d. hagnaður við­skipta­bankanna þriggja litlu minna en allar út­flutnings­tekjur á þorska­furðum á síðasta ári,“ skrifar Vil­hjálmur.

Hægt er að lesa pistill Vil­hjálms í heild sinnihér.