Vil­hjálmur segir Seðla­bankann færa fé frá skuld­settum heimilum til ofur­ríkra fjár­magns­eig­enda: „Þyngra en tárum taki“

Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Starfs­greina­sam­bandsins, segir að­gerðar­leysi stjórn­valda og þing­manna hrópandi vegna efna­hags­á­standsins sem núna er uppi.

„Eina sem stýri­­vaxta­hækkanir hafa gert er að færa fé frá skuld­­settum heimilum og fyrir­­­tækjum yfir til fjár­­mála­­kerfisins og ofur­­­ríkra fjár­­magns­­eig­enda. Munum að frá banka­hruninu hafa við­­skipta­bankarnir þrír skilað yfir 1000 milljörðum í hagnað!“ skrifar Vil­hjálmur á Face­book.

Vil­hjálmur deilir síðan frétt Vísis með færslunni og segir að eins fram kemur í henni mun hækkandi vaxta­stig auka vaxta­­tekjur bankanna veru­­lega enda eru vaxta­­tekjur bankanna stærsti tekjuliður þeirra.

„Gríðar­­legar vaxta­hækkanir Seðla­bankans að undan­­förnu hafa lent af fullum þunga á heimilum og hafa þúsundir heimila og leigj­enda þurft að þola tug­­þúsunda hækkun á greiðslu­byrgði á mánuði. Það er með ó­­líkindum að al­­menningur, heimili og fyrir­­­tæki láti það við­­gangast að verið sé að færa gríðar­­lega fjár­hæðir í hverjum mánuði frá skuld­­settum heimilum og fyrir­­­tækja yfir til fjár­málaelítunnar,“ skrifar Vil­hjálmur.

„Að­­gerða­­leysi stjórn­valda og þing­manna er hrópandi þegar verið er að níðast heimilum með slíkum okur­­vaxta­hækkunum mánuð eftir mánuð. Nú er ekkert annað í stöðunni fyrir verka­­lýðs­hreyfinguna en að byrja að undir­­búa verk­­falls­að­­gerðir og vera klár í slaginn í haust þegar kjara­­samningar renna út.“

„Það er alla­vega eitt víst að ekki er hægt að horfa að­­gerða­­laus á Seðla­bankann þurrka upp allan á­vinninginn sem við náðum í síðasta kjara­­samningi og færa þann á­vinning yfir til fjár­­mál­­kerfisins. Nú er komið að sam­­stöðu alls launa­­fólks og vinna bug á þessu of­beldi sem heimili og launa­­fólk hafa þurft að búa við ára­tug eftir ára­tug.“

„Það er þyngra en tárum taki að hlusta á rök Seðla­bankans að þessar vaxta­hækkanir séu gerðir með hags­muni heimila og fyrir­­­tækja að leiðar­­ljósi, því­­líkt djöfulsins rugl og kjaft­æði.
Við launa­­fólk vil ég segja, það reynir á okkur að brjóta þetta vaxta­of­beldi á bak aftur í komandi kjara­­samningum og ef það þarf verk­­falls­að­­gerðir til þess, þá verður svo að vera, enda ekki hægt að horfa uppá þetta á­­tölu­­laust stundinni lengur! Ég í­treka að allur á­vinningur af síðasta kjara­­samningi hefur verið færður frá launa­­fólki yfir til fjár­málaelítunnar,“ skrifar Vil­hjálmur að lokum.