„Það vantraust og sú tortryggni sem er að byggjast upp í samfélaginu okkar út í atvinnulífið og atvinnurekendur veldur mér miklum áhyggjum. Verkalýðshreyfingin kemur varla fram opinberlega án þess að gefa í skyn að það liggi fiskur undir steini hjá atvinnurekendum, grímulaus öfundsýki blossar upp við jákvæðar fréttir úr atvinnulífinu og á henni ala of margir fjölmiðlar og líka stjórnmálamenn til þess eins að innheimta fleiri klikk eða læk,“ svona hefst pistill Vilhjálms Árnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins íFréttablaðinu í dag.
„Hér áður fyrr var horft mikið upp til atvinnurekenda sem lögðu á sig mikla vinnu, tóku áhættu með sitt sparifé og lögðu jafnvel heimili sitt að veði til að skapa verðmæti fyrir sig og samfélagið. Þannig hafa einstaklingar í krafti frelsis til athafna stofnað fyrirtæki og skapað störf fyrir fólk sem tryggir fjölskyldum þess lífsviðurværi og velferð,“ bætir hann við.
„Allir hafa vonast eftir, eða barist fyrir, atvinnuuppbyggingu í sínu samfélagi. Það er þessi kraftur og hvati einstaklinganna til að byggja upp verðmætasköpun sem tryggir okkur það velferðarsamfélag sem við búum við í dag.“
Vilhjálmur segir að þessi tortryggni hefur leitt af sér mikið vantraust.
„Sem við sjáum í því miður of mörgum lögum og reglugerðum, risastórum eftirlitsiðnaði og auknum kröfum til atvinnulífs og stofnana. Kostnaðurinn sem þessu fylgir er íþyngjandi og ekki til að hjálpa atvinnulífinu fram á veginn. Samhliða þessu höfum við lagt ýmsar skyldur á fyrirtæki og stofnanir sem kallar á skýrsluskil sem kosta bæði peninga og tíma.“
„Endurstillingar er þörf, við þurfum að komast upp úr öfundsýkinni og hefja uppbyggjandi umræðu um það sem raunverulega skapar tækifæri, verðmæti og betri lífsgæði fyrir okkur öll. Viljum við auka velferðina í okkar samfélagi verðum við að hvetja til enn frekari atvinnuuppbyggingar og styðja við þá framtakssömu og tala það fólk upp en ekki niður,“ skrifar Vilhjálmur að lokum.