Vilhjálmur segir Eflingu til skammar: Fólkið sjálft muni fella stóra dóminn

Atkvæðagreiðslu um nýjan skammtímakjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins lýkur á slaginu tólf í dag. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, er bjartsýnn en viðurkennir dálítinn ótta vegna umræðu Eflingar um samninginn í fjölmiðlum. Niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar er að vænta eftir hádegi í dag.

„Þegar þú opnar ekki fjölmiðil án þess að Efling sé að afvegaleiða umræðu og gefa rangar upplýsingar um innihald samningsins þá eðlilega hefur maður kvíðboga að slíkt muni geta haft áhrif,“ segir Vilhjálmur og bætir við að það hafi farið mikill tími í að vinda ofan af röngum og villandi upplýsingum sem „þetta fólk hefur ástundað.“

Starfsgreinasambandið og Samtök atvinnulífsins undirrituðu samninginn í byrjun mánaðar en í fréttatilkynningu kom fram að markmið hans væri að styðja við kaupmátt launafólks og brúa bilið yfir í nýjan langtímasamning í anda Lífskjarasamningsins.

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja samninginn hófst 9. desember síðastliðinn og lýkur líkt og fyrr segir á slaginu tólf í hádeginu í dag. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar eftir hádegi.

Aðspurður hvort hann sé bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur svarar Vilhjálmur játandi en hann setur þó spurningarmerki við umræðu Eflingar í kjölfar undirritunar samningsins.

„Þetta er algjörlega til skammar það sem átti sér þarna stað og ég veit svo sem ekkert hvaða áhrif þessi skemmdarverk muni hafa á okkar kosningu en stóri dómurinn mun bara falla þegar fólkið sjálft tekur hlutlausa afstöðu til þess sem kjarasamningurinn býður upp á og það verður afar fróðlegt að sjá það að miðað við þessar staðreyndir hvernig Efling hefur hagað sér frá því að við undirrituðum samninginn,“ segir Vilhjálmur.