„Hérna afhjúpast enn og aftur sú skefjalausa hræsni sem viðgengst í íslensku samfélagi,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, á Facebook-síðu sinni.
Vilhjálmur gerir frétt Kjarnans þess efnis að laun Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair Group, hefðu hækkað umtalsvert á milli ára í fyrra. Námu þau 518 þúsund dollurum á á síðasta ári en voru 355 þúsund dollarar árið 2020. Þetta gerist á sama tíma og Icelandair skilaði umtalsverðu tapi.
„Eins og allir vita þá öskrar yfirelítan á Íslandi í hvert sinn og kjarasamningar verkafólks eru lausir um hvort þau ætli virkilega að „ógna“ stöðugleikanum og stuðla að aukinni verðbólgu með kröfum sínum sem yfirleitt lúta að því að hækka laun þeirra um 20 til 30 þúsund á mánuði,“ segir Vilhjálmur sem vísar í viðtal við Boga í þættinum Dagmál á mbl.is í maí í fyrra þar sem kjaramál voru til umræðu. Í viðtalinu sagði Bogi að launahækkanir hér á landi hefðu verið út úr kortinu miðað við samkeppnislöndin.
„Á sama tíma og þessi orð eru að falla eru laun og hlunnindi forstjórans að hækka á milli ári um 2,2 milljónir á mánuði eða úr 4,7 milljónum í 6,9 milljónir. Ég held að allur almenningur sjái þá botnlausu hræsni sem þarna er í gangi,“ segir hann og bætir við:
„Það kemur vel í ljós í skýrslu tilnefninganefndar Icelandair Group, sem var birt í Kauphöll Íslands á sínum tíma hvernig lykilstjórnendur í stórfyrirtækjum víla ekki fyrir sér að telja sér trú um að þeir þurfi að hafa ofurlaun sem eru oft á tíðum tvö-og þreföld laun forsætisráðherra,“ segir hann. Vísar hann í skýrsluna þar sem segir orðrétt:
„…það sé viðvarandi áhætta fyrir félagið að lykilstarfsmenn hætti þar sem þeir fá ekki nægilega vel greitt fyrir störf sín og nefna í því samhengi að þrír framkvæmdastjórar hjá Icelandair Group hafa hætt störfum frá síðasta aðalfundi.“
Vilhjálmur er ekki ánægður með þessa þróun og vill að Bogi – og fleiri forstjórar á háum launum – hreinlega steinhaldi kjafti.
„Já laun uppá tæpar 7 milljónir á mánuði hjá fyrirtæki sem hefur tapað 80 milljörðum á fjórum árum og fengið milljarða úr höndum skattgreiðenda til að takast á við faraldurinn!
Ég krefst þess að forstjórar stórfyrirtækja hafi framvegis vit á því að „steinhalda kjafti“ þegar kemur að því að semja um kaup og kjör verkafólks á íslenskum vinnumarkaði enda sýnir þessi launahækkun forstjóra Icelandair Group að þeim sé það hollast.“