Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að stýrivaxtahækkun Seðlabankans í morgun muni lenda þungt á heimilum og fyrirtækjum strax sem eru með breytilega vexti.
Vitnar hann í frétt Viðskiptablaðsins frá því í maí 2020, sem er áður en faraldurinn dróst á langinn, um að vextir ættu að haldast lágir til frambúðar.
„Það má segja að allar spár bankans á liðnum árum og áratugum hafi aldrei staðist. Spurning hvort Seðlabankinn eigi ekki að ráða Siggu Kling til að sjá um verðbólgu- og vaxtaspá fyrir bankann,“ segir Vilhjálmur.
Sigríður Klingenberg, best þekkt sem Sigga Kling, er vinsæl fyrir stjörnuspár sínar.
Hann vitnar í orð Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra frá því í morgun og segir þetta hótun: „Það er reyndar orðið óþolandi þær hótunar sem komu fram hjá seðlabankastjóra til launafólks þegar hann sagði í morgun orðrétt:
„aðalfókusinn“ vera kjarasamningana í haust og hvort þeir nái að trygga verðstöðugleika . „Við óskum að þeir samningar munu gera það. Þá þurfum við ekki að breyta stýrivöxtum,“ sagði hann".
Enn og aftur kemur Seðlabankinn eins og svo fjölmargir hagsmunaaðilar fjármálakerfisins og yfirelítunnar á Íslandi og hótar verkafólki á hinum almenna vinnumarkaði þegar styttist í kjarasamninga þeirra.“
Vilhjálmur segir lítið mál fyrir fyrirtækin í landinu að hækka laun í ljósi mikilla arðgreiðslna.
„Þetta er stórundarlegt samfélag þar sem hagsmunir fjármálaelítunnar eru ætíð hafðir í fyrirrúmi á kostnað neytenda og heimila í þessu blessaða landi okkar.“