Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, er ekki mikill aðdáandi Dags B. Eggertssonar, oddvita Samfylkingarinnar og borgarstjóra Reykjavíkur síðustu ára.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag gagnrýnir hann Dag harðlega og segir að hann og meðreiðarsveinar hans í borgarstjórn hafi lýst glæstri sýn á uppbyggingu í borginni með hverri glærusýningunni á fætur annarri. Efnir séu hins vegar litlar.
„Þessar glærusýningar borgarstjóra hafa staðið yfir nánast samfellt í 12 ár; 2010-2014, þegar Dagur aðstoðaði Jón Gnarr borgarstjóra, og frá 2014-2022, sem Dagur hefur gegnt starfi borgarstjóra. Meirihlutinn féll í kosningunum og nú er reynt að fá Framsókn til að búa til nýjan meirihluta. Augljóst er hver það verður sem mun stjórna þeim meirihluta ef hann verður staðreynd,“ segir Vilhjálmur og bendir á ýmis atriði sem eru gagnrýnisverð í hans huga.
Hann nefnir til dæmis lóðaskort og þá staðreynd að nánast enginn, eða í besta falli fámennur hópur einstaklinga, geti fengið lóð úthlutaða undir ráðhús, parhús eða einbýlishús.
„Nánast öll uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík, aðallega háreist fjölbýlishús, er að mestu komin á hendur öflugra byggingarfyrirtækja, fjárfestingarsjóða eða íslenskra og erlendra auðmanna,“ segir hann og bætir við að ungt fólk eigi litla möguleika á að kaupa sér nýjar íbúðir í Reykjavík.
Þá nefnir Vilhjálmur samgöngumál og vegabætur og bætir við að afar mikilvægt sé að efla og bæta núverandi gatnakerfi í borginni, gera það skilvirkara og öruggara.
„Almenningssamgöngur í borginni hafa verið vanræktar um árabil en nú hyggst meirihlutinn kasta að sínu mati líflínu til borgarbúa sem hann kallar borgarlínu. Núverandi gatnakerfi borgarinnar er í lamasessi og í „átaki“ til að fjölga farþegum í strætó hefur lítill sem enginn árangur náðst. Á síðustu vikum fyrir nýlegar kosningar birtist hver glærusýningin á fætur annarri af hálfu meirihlutans, endurteknar tillögur frá fyrri kosningum; Miklabraut í stokk, gull-borgarlína fyrir 120 milljarða og Sundabraut enn á ný í skoðun.“
Vilhjálmur segir að staðreyndin sé sú að áhugi Samfylkingar fyrir byggingu Sundabrautar sé við frostmark. „Hverju eiga borgarbúar að trúa þegar Samfylkingin fjallar um samgöngumál í borginni? Nánast ekkert hefur verið gert í þeim efnum í 12 ár nema að torvelda umferðina. Litlar sem engar framkvæmdir, nánast einungis glærusýningar af þessum fyrirhuguðum verkefnum.“
Vilhjálmur segir að sýningin verði að halda áfram.
„Hvenær ætla borgarbúar að átta sig á ruglinu sem hefur verið í gangi undanfarin ár? Það fóru 500 milljónir króna í grjóthleðslu á Klambratúni sem eftir á er sagt að standist enga umferðaröryggisstaðla. Það fóru 200 milljónir króna í að þrengja Grensásveginn, nokkuð sem var algjör óþarfi. Svo fóru 150 milljónir króna í að þrengja Hofsvallagötuna og smíða þar fuglahús og malbika í björtum litum. Farsinn í Borgartúni, sem kostaði 250 milljónir króna og hefur teppt þar umferð verulega og gert götuna óöruggari, er sérstakt rannsóknarefni. Samtals um 1.100 milljónir króna,“ segir hann og endar grein sína á þessum orðum:
„Hvenær er eiginlega komið nóg? Þessir peningar hefðu sómt sér betur í að styrkja leikskólana og önnur bráðnauðsynleg verkefni. En sýningin verður að halda áfram.“