Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, gagnrýnir harðlega fyrirhugaðar launahækkanir fimm sviðsstjóra hjá Akraneskaupstað. Vísar hann í frétt Skagafrétta um umræður á bæjarstjórnarfundi um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Síðari umræður fara fram um miðjan desember.
Lagt er til að fimm sviðsstjórar Akraneskaupstaðar fái tæplega 200 þúsund króna hækkun á launum sínum á mánuði. Málið vakti harðar umræður á fundinum en bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar og frjálsra telja mikilvægt að hækka laun sviðsstjóra með hliðsjón af álagi og unnum yfirvinnustundum þeirra.
Vilhjálmur segir þetta veruleikafirrt í grein á Facebook. „Það má segja að það sé of vægt að segja að ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar sé köld tuska í andlit upp undir 400 félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness sem starfa hjá Akraneskaupstað, þessi ákvörðun má frekar líkja við að fá sleggju í andlitið.“
Hann segir að ef þetta verði samþykkt muni það marka ný viðmið í komandi kjaraviðræðum. „Ef þessi ákvörðun verður endanlega samþykkt í desember þá mun það klárlega marka ný viðmið þegar kemur að því að móta kröfur á hendur sveitafélögunum og atvinnurekendum, enda ljóst að bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur markað línurnar um hvað sé til skiptanna og skilaboðin eru hvellskýr, „það er nóg til“,“ segir hann og bætir við:
„Ef ekki væri friðarskylda hjá félagsmönnum Akraneskaupstaðar þá myndi ég hvetja félagsmenn mína ef þessi fjárhagsáælun verður endanlega samþykkt í desember þar sem fram kemur þessi hækkun að leggja niður störf í 2 tíma eða svo. En ítreka að ég má ekki leggja þetta til vegna þess að í gildi er friðarskylda, en mér er algjörlega misboðið.“