Vil­hjálmur reiður: „Þetta er ó­geð­felld hótun, ef sönn er!“

Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, segir að ef það reynist rétt að Icelandair Group í­hugi að ráða flug­freyjur sem standa utan Flug­freyju­fé­lags Ís­lands sé það ein al­var­legasta árás sem gerð hefur verið á kjara­bar­áttu launa­fólks hér á landi.

Markaðurinn í Frétta­blaðinu greinir frá því í dag að Icelandair Group gæti látið reyna á kjara­samnings­á­kvæði fyrir fé­lags­dómi svo unnt sé að ráða flug­freyjur utan stéttar­fé­lags flug­freyja. Sam­kvæmt heimildum Markaðarins er þetta val­mögu­leiki sem stjórn­endur Icelandair Group eru sagðir í­huga að grípa til ef ekki nást samningar.

Eins og flestum er kunnugt er staða Icelandair mjög veik um þessar mundir og hefur fé­lagið leitað allra leiða við að lækka launa­kostnað sinn.

Icelandair hefur þegar samið við flug­menn og flug­virkja, en fé­lagið freistar þess að ná fram yfir 20 prósenta hag­ræðingu í launa­kostnaði fyrir hlut­hafa­fund á föstu­daginn þar sem tekin verður á­kvörðun um lið­lega 30 milljarða hluta­fjár­út­boð.

Vil­hjálmur Birgis­son er mjög ó­hress með þetta og segir:

„Ef þessi hótun er stað­reynd þá er þetta ein mesta og hættu­legasta árás sem gerð hefur verið á kjara­bar­áttu launa­fólks í sögu verka­lýðs­hreyfingarinnar. Það er morgun­ljóst að verka­lýðs­hreyfingin í heild sinni hlýtur að sjá til þess að ef þessi hótun raun­gerist að ekki fari ein einasta króna úr líf­eyris­sjóðum launa­fólks í komandi hluta­fjár­út­boð hjá Icelandair.

Þetta er ó­geð­felld hótun, ef sönn er!“