Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, er allt annað en sáttur við olíufélögin.
Vilhjálmur, sem er Akurnesingur í húð og hár, bendir á það á Facebook-síðu sinni að það kostar Akurnesinga tæpum 1.200 krónum meira að fylla 55 lítra bensíntank hjá N1 á Akranesi en í Reykjavík.
„Hjá fólki sem þarf að fylla 3 tanka á mánuði þá munar um 3600 krónum á mánuði og til að hafa 3600 kr. í ráðstöfunartekjur þarf um 6000 kr. í laun,“ segir Vilhjálmur og bætir við að þetta sé ótækt með öllu.
„Algjörlega óboðlegt hvernig olíufélögin koma fram við landsbyggðina, enda nánast undantekningarlaust sem verðið út á landi er umtalsvert hærra en á höfuðborgarsvæðinu.“