Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, er mjög ósáttur við stýrivaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabankans í morgun. Stýrivextir hækka um 1 prósent og eru þeir nú komnir í 3,75 prósent.
Í færslu á Facebook-síðu sinni varpar Vilhjálmur ljósi á það hvernig 50 milljóna króna húsnæðislán á breytilegum vöxtum gæti breyst eftir ákvörðun peningastefnunefndar.
„Heimili sem er með 50 milljóna húsnæðislán á breytilegum vöxtum getur átt von á að greiðslubyrðin aukist um 41 þúsund krónur á mánuði eða tæpar 500 þúsund krónur á mánuði. Heldur Seðlabankinn að slík aukning á greiðslubyrgði auki líkurnar á að hægt verði að ganga frá kjarasamningum, nei fjandakornið ekki!“
Í pistli sínum segir Vilhjálmur að þessi ákvörðun sé ekkert annað en stríðsyfirlýsing við launafólk, neytendur, heimili og fyrirtæki landsins.
„Það er alveg ljóst að þetta getur vart annað en kallað á hörð viðbrögð af hálfu verkalýðshreyfingarinnar og mun klárlega endurspegla kröfugerð þeirra sem nú er verið að ganga frá vítt og breitt um landið.“
Vilhjálmur bendir á að fyrirtæki á hinum almenna markaði skuldi fimm þúsund milljarða, samkvæmt Hagstofu Íslands. Stýrivaxtahækkun upp á 1 prósent þýði að fjármagnskostnaður þeirra hækkar um 50 milljarða á ársgrundvelli. Það sé nánast sama upphæð og kostar að ganga frá kjarasamningum á hinum almenna vinnumarkaði.
„Það er alveg ljóst að aukinn fjármagnskostnaður fyrirtækja mun fara beint út í verðlag og þjónustu sem að á endanum endar á herðum neytenda. Það væri gott ef seðlabankastjóri gæti útskýrt það á mannamáli hvernig kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði séu ætíð að ógna stöðugleika í íslensku samfélagi þegar bara þessi stýrivaxtahækkun getur leitt til þess að það kosti fyrirtækin jafnmikið og að ganga frá kjarasamningi á hinum almenna vinnumarkaði,“ segir Vilhjálmur sem veltir fyrir sér hvort Seðlabankinn hefði getað farið aðra leið.
„Hví í ósköpunum beitir seðlabankinn ekki öðrum stjórntækjum sem hann hefur til umráða til að slá á húsnæðismarkaðinn. Það er með ólíkindum að hann skuli enn og aftur dekra við fjármálaöflin og það hefur verið grátbroslegt að sjá í fréttum að undanförnu að aðalálitsgjafarnir um stýrivaxtahækkunina hafa verið fulltrúar úr bankakerfinu þar sem þeir hafa verið að spá umtalsverðri hækkun á stýrivöxtum og nú hefur þeim orðið að ósk sinni,“ segir hann.