Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ, viðurkennir fúslega að hann hafi verið verulega áhyggjur af því hvernig gengið muni þróast næstu dagana og vikurnar.
Vilhjálmur skrifar pistil um þetta á Facebook og segir ljóst að gríðarlegt högg mun koma á ferðaþjónustuna í ljósi útbreiðslu kórónaveirunnar.
„Hvað mun gerast með gengið, þegar fjárinnstreymi af erlendum gjaldeyrir mun dragast stórkostlega saman vegna fækkunar ferðamanna,“ spyr hann.
Vilhjálmur segist vilja fá upplýsingar um hvernig menn ætla að bregðast við þessu. „Er ekki t.d. mikilvægt að lífeyrissjóðirnir hætti alfarið í nokkra mánuði að fjárfesta erlendis til að valda ekki enn frekari falli krónunnar,“ segir Vilhjálmur sem kallar eftir viðbrögðum.
„Það síðasta sem við megum við núna er mikið fall á krónunni sem myndi leiða til aukinnar verðbólgu og hækkunar á verðtryggðum skuldum heimilanna. Við verðum að bregðast við að það gerist ekki, en núna stendur dollarinn í 128 og evran í 144,“ segir hann.
Seðlabankinn ákvað í morgun að lækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur. Eru meginvextir bankans, það er vextir á sjö daga bundnum innlánum, nú 2,25 prósent. Peningastefnunefnd bankans segir að með þessum aðgerðum sé slakað nokkuð á taumhaldi peningastefnunnar í ljósi versnandi efnahagshorfa vegna útbreiðslu COVID-19.
Seðlabankinn hefur boðað til kynningarfundar klukkan 10, en þar munu Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, kynna ákvörðun peningastefnunefndar.