Vil­hjálmur með skila­boð til þeirra sem segja að stór­iðjan fái raf­orkuna gefins

Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, sendir skýr skila­boð til þeirra sem segja að stór­iðjan fái raf­orkuna á gefins, eða því sem næst.

„Mikið hefur verið fjallað um í fréttum á liðnum dögum að allur sjávar­út­vegurinn sé að greiða 4,8 milljarða í auð­linda­gjöld fyrir af­not af sjávar­auð­lindinni og finnst mörgum að það sé of lítið. Ég ætla svo sem ekkert að leggja mat á það,“ segir Vil­hjálmur í færslu á Face­book-síðu sinni.

Hann bætir við:

„Ég vil hins­vegar benda öllum þeim sem segja að verið sé að "gefa" stór­iðjunni á Ís­landi raf­orkuna og að þessi fyrir­tæki skili „engu“ til ís­lensks sam­fé­lags á þá blá­köldu stað­reynd að „bara“ Elkem Ís­land á Grundar­tanga greiðir nánast sömu upp­hæð og öll auð­linda­gjöld í sjávar­út­vegi nema eða 4,8 milljarð fyrir raf­orkuna.“

Vil­hjálmur bætir við að rétt sé að geta þess að Norður­ál á Grundar­tanga greiðir ná­lægt 13 milljörðum á ári fyrir alla sína raf­orku. Það er 63% meira en allur ís­lenskur sjávar­út­vegur greiðir í auð­linda­gjöld.

„Þetta eru stað­reyndir og sýnir og sannar hversu gríðar­lega mikil­vægur þessi iðnaður er fyrir ís­lenskt sam­fé­lag!“

Veiði­gjöld síðasta árs lækkuðu um 1,8 milljarða króna frá árinu 2019 og um 6,5 milljarða króna frá árinu 2019. Brim greiðir hæstu gjöldin, 367 milljónir króna, en Sam­herji greiðir 281 milljón króna.