Vil­hjálmur með mikil­væg skila­boð: Svona geturðu sparað þér tugi þúsunda á mánuði

„Ég vil hins vegar brýna fyrir öllum sem ekki hafa endur­fjár­magnað hús­næðis­lán sín að gera það hið snarasta enda miklir hags­munir í húfi,“ segir Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness og fyrr­verandi vara­for­seti ASÍ.

Vil­hjálmur bendir á það í nýjum pistli á Face­book-síðu sinni að vaxta­lækkanir að undan­förnu hafi haft mikil á­hrif á hús­næðis­lán lands­manna. Segir hann að eitt af aðal­mark­miðum lífs­kjara­samningsins hafi verið að semja á þeim for­sendum að samningurinn myndi skapa grund­völl til vaxta­lækkunar og með vaxta­lækkun væri mark­miðið að auka ráð­stöfunar­tekjur fólks.

„Nú hefur komið í ljós að þetta mark­mið lífs­kjara­samningsins hefur heppnast,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið að skoða hvernig vaxta­lækkun hefur skilað sér frá því að lífs­kjara­samningurinn var undir­ritaður þann 3. apríl 2019. Segir Vil­hjálmur það afar á­nægju­legt að greiðslu­byrði á ó­verð­tryggðu láni hafi lækkað um 29,56% og á verð­tryggðu láni um 22,4% frá undir­ritun samningsins.

Vil­hjálmur tekur þetta svo saman í dæmi. Gefum honum orðið:

„Við skoðuðum breytingu á vaxta­kjörum í Lands­bankanum fyrir lífs­kjara­samninginn og eins og staðan er í dag er breytingin með eftir­farandi hætti:

Vextir hjá Lands­bankanum miðað við 70% veð­setningar­hlut­fall:

Lægstu verð­tryggðu vextirnir voru 3,55% þann 3. apríl 2019 (Breyti­legir verð­tryggðir vextir)

Breyti­legir verð­tryggðir vextir 24. júní 2020 eru 2,00%

Verð­tryggðir vextir hafa lækkað um 1,55% stig

Ó­verð­tryggðir vextir hjá Lands­bankanum:

Lægstu ó­verð­tryggðu vextirnir 3. apríl 2019 voru 6,00%

Lægstu ó­verð­tryggðu vextirnir 24. júní 2020 eru 3,50%

Ó­verð­tryggðir vextir hafa lækkað um 2,50% stig

Við skoðuðum einnig hvernig greiðslu­byrðin hefur breyst á þessu tíma­bili og hún er eftir­farandi miðað við neðan­greindar for­sendur:

  • For­sendur: 28 m.kr. verð­tryggt jafn­greiðslu­lán til 40 ára:
  • Lán tekið 3. apríl 2019. Greiðslu­byrði á mánuði 111.104 kr.
  • Lán tekið 24. júní 2020. Greiðslu­byrði á mánuði 86.214 kr.
  • Greiðslu­byrði hefur lækkað um 24.890 kr. á mánuði (22,4%)
  • Lækkun á vöxtum jafn­gildir að lán sem tekið væri í dag gæti verið til 28 ára í stað 40 ára.
  • For­sendur: 28 m.kr. ó­verð­tryggt jafn­greiðslu­lán til 40 ára.
  • Lán tekið 3. apríl 2019. Greiðslu­byrði á mánuði 154.200 kr.
  • Lán tekið 24. júní 2020. Greiðslu­byrði á mánuði 108.610 kr.
  • Greiðslu­byrði hefur lækkað um 45.590 kr. á mánuði (29,56%)

Takið eftir ráð­stöfunar­tekjur af ó­verð­tryggða láninu hefur lækkað um 45.590 kr. á mánuði eða sem nemur 547.080 á árs­grund­velli og á verð­tryggða láninu um 24.890 kr. á mánuði eða sem nemur 298.680 kr. á árs­grund­velli.“

Vil­hjálmur segir ljóst að aðal­mark­miðið við gerð lífs­kjara­samningsins hafi svo sannar­lega skilað fé­lags­mönnum hærri ráð­stöfunar­tekjum. Kveðst Vil­hjálmur vera stoltur af því að hafa tekið þátt í samningurinn. Vil­hjálmur hefur áður sagt að lífs­kjara­samningurinn sé einn al­besti kjara­samningur sem hann hefur komið að enda á­vinningurinn um­tals­verður. Vil­hjálmur endar pistilinn þó á mikil­vægum skila­boðum til fólks:

„Ég vil hins vegar brýna fyrir öllum sem ekki hafa endur­fjár­magnað hús­næðis­lán sín að gera það hið snarasta enda miklir hags­munir í húfi.“