Vil­hjálmur krefst að­gerða – Sjáðu hvaða leiga ein­stæðrar móður hækkaði mikið á einum mánuði

Vil­hjálmur Birgis­­son, for­­maður Starfs­­greina­­sam­bandsins, krefst þess að stjórn­völd komi leigj­endum og heimilum þessa lands til að­­stoðar án tafar.

Vil­hjálmur birti færslu á Face­book-síðu sinni í morgun þar sem hann segir frá ein­­stæðri móður sem leigir hjá Ölmu leigu­fé­lagi. Konan sendi honum tölvu­­póst fyrir ári síðan þegar leigu­­fé­lagið hækkaði leiguna úr 199 þúsund krónum í 225 þúsund krónur.

Um er að ræða vísi­­tölu­­tengdan samning og í verð­bólgu­á­standi eins og nú ríkir hækkar leigan frá mánuði til mánaðar.

Í færslu sinni segir Vil­hjálmur að vísi­­tölu­hækkunin virðist ekki vera nóg því þessari sömu konu hafi verið til­­kynnt að ef hún vilji endur­­nýja leigu­­samninginn fari leigan í 267 þúsund krónur á mánuði. Ef fer sem horfir hafi leigan hækkað á tólf mánuðum um 42%, eða langt um­­­fram neyslu­­vísi­­tölu.

„Þessi ein­­stæða móðir hefur leigt hjá Ölmu í 2 ár en í byrjun leigði hún á 190.000 kr. og núna tveimur árum seinna er leigan að fara í 267.000 kr. og hefur því hækkað um 77.000 kr.,“ segir Vil­hjálmur um þetta til­­­tekna dæmi.

„Ég spyr ætla stjórn­völd enn og aftur að horfa á­­tölu­­laust á þetta of­beldi sem leigj­endur þurfa að þola án þess að grípa til að­­gerða til hjálpar þessu fólki? Að­­gerða­­leysi þeirra gagn­vart leigj­endum og vanda heimilanna er æpandi,“ segir Vil­hjálmur sem gagn­rýnir einnig líf­eyris­­sjóði fyrir fjár­­festingar sínar í leigu­fé­lagi sem „níðist“ á leigj­endum. Nefnir hann Festu líf­eyris­­sjóð sér­­stak­­lega og krefst hann þess að sjóðurinn selji skulda­bréf sín í Ölmu.

„Ég krefst þess einnig að stjórn­völd komi leigj­endum og heimilum þessa lands til að­­stoðar án tafar því það verður að stoppa af þessa græðgis­­væðingu sem tröll­ríður ís­­lensku við­­skipta­lífi,“ segir hann.