Vilhjálmur Ingimarsson látinn: „Hans verður sárt saknað“

Vilhjálmur Ingimarsson, stjórnarmaður í Sundfélaginu Óðni og dómari til margra ára, varð bráðkvaddur síðastliðinn fimmtudag, aðeins fertugur að aldri.

Vilhjálms er minnst á heimasíðu Óðins og þá fjallar vefmiðillinn Akureyri.net um andlát hans. Vilhjálmur, ávallt kallaður Villi, var mörgum sundiðkendum á Akureyri að góðu kunnur.

Hann starfaði í stjórn Óðins um nokkurra ára skeið og þar af í eitt ár sem varaformaður.

„Hann var afar virkur dómari og hélt utan um dómaramál fyrir félagið. Hann áætlaði að ljúka yfirdómararéttindum nú í apríl. Villi var duglegur og bóngóður og alltaf tilbúinn að starfa fyrir Óðin. Hann var einnig góður félagi með góða nærveru og hans verður sárt saknað,“ segir á vef sundfélagsins.

Þá sendir stjórn sundfélagsins fjölskyldu Vilhjálms innilegar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum.