Vil­hjálmur hvass í máli: „Sjálf­stæðis­flokkurinn vílar ekki fyrir sér að svíkja gefin lof­orð“

Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness og fyrr­verandi vara­for­seti ASÍ, segir það löngu orðið ljóst að Sjálf­stæðis­flokkurinn hikar ekki við að svíkja gefin lof­orð. Vil­hjálmur skrifar pistil á Face­book-síðu sína þar sem hann segir að enn og aftur virðist stjórn­völd vera að svíkja gefin lof­orð um af­nám verð­tryggingar.

„Ein af aðal­á­stæðum þess að okkur tókst að ganga frá lífs­kjara­samningum sem undir­ritaður var 3. apríl 2019 var skrif­leg yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar í sjö liðum um að stígið yrði kröftug skref til af­náms verð­tryggingar,“ segir Vil­hjálmur en hann leiddi við­ræður um yfir­lýsingu stjórn­valda fyrir hönd verka­lýðs­hreyfingarinnar. Segist Vil­hjálmur hafa verið í beinu sam­bandi við Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um út­færslu á yfir­lýsingunni.

Svikin loforð

„Nú hefur komið í ljós að enn og aftur stefnir allt í að það eigi að svíkja þetta lof­orð,“ segir Vil­hjálmur sem vísar í þriðja lið yfir­lýsingarinnar þar sem segir:

„Frá og með árs­byrjun 2020 verði ó­heimilt að veita verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til neyt­enda til lengri tíma en 25 ára nema með á­kveðnum skil­yrðum. Rökin fyrir þessu felast fyrst og fremst í þeim ó­kostum verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána að verð­bótum er bætt við höfuð­stól lánsins og greiðslu þeirra frestað þannig að eigna­myndun verður hægari en ella og líkur á nei­kvæðu eigin fé lán­taka aukast.“

Vil­hjálmur segir að ekkert bóli á frum­varpi um bann við 40 ára jafn­greiðslu­lánum og bendir Vil­hjálmur á að bannið hefði – að ó­breyttu – átt að taka gildi um síðustu ára­mót.

„Hins vegar veit ég til þess að fjár­mála­ráð­herra hafði í hyggju að leggja fram frum­varp þar sem undan­þágur verði með þeim hætti að nánast allir sem vilja geta haldið á­fram að taka þessi 40 ára lán. Með öðrum orðum fjár­mála­ráð­herra ætlar að svíkja lof­orð sem ríkis­stjórnin gerði sam­hliða lífs­kjara­samningum.“

Sorglegt að Framsókn fari sömu leið

Vil­hjálmur rifjar upp að mörg ár séu liðin síðan farið var að lofa af­námi verð­tryggingarinnar. Það gerðist til dæmis í kosningunum 2013 þegar Fram­sóknar­flokkurinn og Sjálf­stæðis­flokkurinn voru saman í ríkis­stjórn.

„Sú ríkis­stjórn skipaði sér­fræðinga­hóp um af­nám verð­tryggingar árið 2013 og komst sá sér­fræðinga­hópur að þeirri niður­stöðu að það yrði að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán vegna þess að þau væru ban­eitraður kok­teill og lagði sér­fræðinga­hópurinn til að þessi lán yrðu bönnuð frá og með 1. janúar 2015.“

Vil­hjálmur segir að þetta hafi að sjálf­sögðu verið svikið og nú ætli sömu flokkar, það er að segja Sjálf­stæðis­flokkur og Fram­sóknar­flokkur sem eru í ríkis­stjórn, enn og aftur að svíkja undir­ritaða yfir­lýsingu um bann við 40 ára verð­tryggðum jafn­greiðslu­lánum.

„Það er löngu orðið ljóst að Sjálf­stæðis­flokkurinn vílar ekki fyrir sér að svíkja gefin lof­orð eins og enginn sé morgun­dagurinn þegar kemur að hags­munum al­þýðunnar. Það er hins vegar sorg­legt að Fram­sóknar­flokkurinn ætlar enn og aftur að hlýða sjálf­stæðis­flokknum eins og þægur heimilis­hundur.“

Þýðir lítið að kaupa dýrar auglýsingar

Vil­hjálmur segir að það komi honum ekki á ó­vart að Sjálf­stæðis­flokkurinn svíki þetta lof­orð, „enda eru þeir og hafa alltaf verið helstu varð­hundar fjár­magnsins á kostnað al­þýðunnar en að Fram­sóknar­flokkurinn skuli enn og aftur láta rass­skella sig í verð­tryggingar­málunum er rann­sóknar­efni.“

Vil­hjálmur endar pistilinn á þessum orðum:

„Held að það þýði lítið fyrir Fram­sóknar­flokkinn að kaupa dýrar aug­lýsingar fyrir næstu kosningar í ljósi þessara svika enn og aftur!

Það er hins vegar orðið ljóst að þessi svik á­samt fleiri at­riðum geta sett lífs­kjara­samninginn í upp­nám þegar kemur að endur­skoðun í septem­ber á því hvort segja eigi samningum upp.

Það er alla­vega gjör­sam­lega ó­þolandi og ó­líðandi að stjórn­mála­menn geti komist sí­endur­tekið upp með að svíkja gefin lof­orð án þess að slíkt hafi af­leiðingar í för með sér.“