Vilhjálmur hjólar í Þórdísi Kolbrúnu: Haraldur betri kostur en hún?

„Getur verið að Haraldur Benediktsson sem einnig sækist eftir að leiða listann sé kannski skárri kostur við að verja lífsafkomu hundruð fjölskyldna hér á Akranesi?“

Þessari spurningu varpar Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, fram á Facebook-síðu sinni. Vilhjálmur gerir viðtal Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins, í dag við Álfheiði Ágústsdóttur, forstjóra Elkem, að umtalsefni.

Bendir Vilhjálmur á að Álfheiður tali enn og aftur skýrt um það að nýr raforkusamningur sem tók gildi árið 2019 sé að drepa fyrirtækið.

„Þessi nýi raforkusamningur hækkaði raforkukostnað fyrirtækisins um 1,3 milljarða sem er meira enn allur launakostnaður fyrirtækisins nemur á ári. Ég vil minna alla á að í dag er Elkem Ísland að greiða jafn mikið fyrir afnot af raforkunni og öll auðlindagjöld í sjávarútvegi nema á þessu ári, eða um 4,8 milljarða,“ segir Vilhjálmur.

Í viðtalinu sagði Álfheiður að raforkuverðið hafi gefið samkeppnisforskot hér á landi en það sé ekki lengur fyrir hendi. „Þessi verksmiðja yrði aldrei byggð í dag á þeim raforkuverðum sem eru í boði.“

Af þessu tilefni varpar Vilhjálmur ákveðnum spurningum fram til Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur iðnaðarráðherra og þingmanna kjördæmisins sem eiga að gæta hagsmuna íbúa í kjördæminu. Spyr Vilhjálmur hvort þeir ætli enn og aftur að horfa aðgerðalaust á það gerast að öflugt fyrirtæki Akurnesinga og Vestlendinga lognist út af.

„Það eru einungis nokkur ár frá því að einu öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi var rænt frá Akurnesingum um hábjartan daginn með skelfilegum afleiðingum fyrir samfélagið allt. Í heildina töpuðust um 300 störf og launagreiðslur sem námu 5,4 milljörðum.

Ætla þingmenn kjördæmisins og iðnaðarráðherra að sitja með hendur í skauti þegar forstjóri fyrirtækisins sem er með 170 manns í vinnu segir að allt eins líklegt sé að raforkukostnaður fyrirtækisins leiði til þess að þessu öfluga fyrirtæki verði lokað fyrir fullt og allt?“

Vilhjálmur segir að það sé grátbroslegt að hugsa til þess að Þórdís Kolbrún skuli sækjast eftir að leiða lista Sjálfstæðismanna í kjördæminu á sama tíma og það hafi verið vitað lengi að Elkem, eitt stærsta fyrirtækið í kjördæminu, berst fyrir lífi sínu.

„Þessi iðnaður heyrir undir hennar ráðuneyti og því spyr maður sig, af hverju eigum við Akurnesingar að treysta henni fyrir því að verja hagsmuni okkar vestlendinga í ljósi þessara staðreynda? Getur verið að Haraldur Benediktsson sem einnig sækist eftir að leiða listann sé kannski skárri kostur við að verja lífsafkomu hundruð fjölskyldna hér á Akranesi? Ég biðla til Akurnesinga og sveitarstjórnarmanna að taka höndum saman og tryggja að við verðum ekki fyrir enn einni blóðtökunni í atvinnumálum hér á Akranesi nóg er komið af slíku!“