Vil­hjálmur hjólar í Drífu Snæ­dal: „Ör­vænting for­seta ASÍ al­gjör“

Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, svarar grein Drífu Snæ­dal „Á­tökin í verka­lýðs­hreyfingunni“ fullum hálsi í nýjum pistli á Vísir.is

„Það er greini­legt að ör­vænting Drífu Snæ­dal for­seta ASÍ er al­gjör en í þessari grein sem ber heitið „Á­tökin í verka­lýðs­hreyfingunni“ er sann­leikurinn og stað­reyndir al­gjört auka­at­riði. Ég ætla í þessari grein að fjalla um það sem lýtur að mér sem fyrsta vara­for­seta og af­sögn mína 1. apríl 2020,“ skrifar Vil­hjálmur.

„Eins og flestir vita þá var Drífa kosin for­seti ASÍ árið 2018 og ég sem 1 vara­for­seti og Kristján Þórður 2. vara­for­seti. En þessi breyting á for­seta­t­eyminu kom til eftir að Sól­veg Anna vann yfir­burða­sigur í for­manns­kjöri í Eflingu 2017 og það myndaðist meiri­hluti inná þinginu fyrir raun­veru­legum breytingum. Það var gríðar­legt á­kall frá hinum al­menna fé­lags­manni um breytingar á ASÍ enda hafði ASÍ skrapað botninn í öllum skoðana­könnunum sem gerðar hefðu verið.“

Hann viður­kennir fús­lega að hann hafði miklar væntingar með þessari breytingu yrðu miklar já­kvæðar breytingar á stjórnunar­háttum ASÍ.

„ Ekki leið langur tími þar til ég áttaði mig á því að lítið hafði breyst við þessi for­seta­skipti og voru miklir sam­starfs­örðug­leikar milli mín og for­seta ASÍ. Þessar stað­reyndir liggja bæði í tölvu­póst­sam­skiptum og einnig áttum við nokkra fundi með for­seta ASÍ ég, Ragnar Þór og Sól­veig Anna þar sem þessi sam­starfs­örðug­leikar og slæma upp­lýsinga­gjöf var rædd og reynt að vinna lausn á þessum vanda.“

„For­seti ASÍ átti ekki bara í sam­skipta­örðug­leikum við mig sem 1. vara­for­seta heldur var einnig djúp­stæður á­greiningur milli Ragnars Þórs sem hann hefur svo sem fjallað um og einnig var mikill á­greiningur um hinar ýmsu verka­lýð­s­pólitísku leiðir milli Sól­veigar Önnu og Drífu,“ skrifar Vil­hjálmur

Hann rekur síðan að­dragandann að upp­sögn sinni sem 1. vara­for­seti ASÍ en hægt er að lesa grein Vil­hjálms í heild sinni hér.